Viðskiptavinir VÍS sem eru með F plús 2, F plús 3 eða F plús 4 fjölskyldutryggingu eru sjálfkrafa með ferðatryggingar erlendis og gildir hún í allt að 92 daga frá og með brottfaradegi hverju sinni.

Standi ferðalag lengur en 92 daga er hægt að bæta öðrum 92 dögum við gilda F plús ferðatryggingu tryggingartaka. Viðbótin tekur gildi frá og með 93. ferðadegi til 185. dags.

Ferðatryggingar F plús gilda fyrir tryggingartaka, maka eða sambýlismaka og ógift börn þeirra enda séu þessir aðilar með skráð sameiginlegt lögheimili á Íslandi, sameiginlegt heimilishald og búa á sama stað og tryggingartaki. Einnig nær tryggingin til barna vátryggðs sem ferðast með honum erlendis séu þau yngri en 16 ára og hafa annað lögheimili en hann.

Hægt er að fá staðfestingu á ferðatryggingu F plús, kaupa viðbótar ferðatryggingu eða fá meiri upplýsingar um ferðatryggingar VÍS á næstu skrifstofu eða hafa samband við þjónustuver VÍS í 560 5000.

Einnig er hægt að skoða samanburðatöflu F plús til að bera saman ferðatryggingar F plús.

Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað. Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.