Hleð spilara!

Ferðatryggingar F plús - viðbót

Ferðatrygging F plús er viðbót við þá bótaþætti ferðatrygginga sem innifaldir eru í F plús 2, F plús 3 og F plús 4.


Ferðatrygging F plús er fyrir þá sem eru með F plús tryggingu og eru að ferðast lengur en í 3 mánuði samfleytt. Tryggingin er viðbót við þá ferðatryggingu sem innifalin er í F plús tryggingu vátryggingartaka og gildir í 92 samfellda daga eftir að ferðatrygging F plús er dottin úr gildi, s.s. frá degi 93 til 185. dags.

Innifalið í Ferðatryggingu F plús er ferðasjúkra- og ferðarofstrygging, farangurstrygging, farangurstafatrygging og ábyrgðartrygging en þess má geta að frítímaslysatrygging F plús gildir líka fyrir þetta tímabil.

  • Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging erlendis greiðir bætur vegna útlagðs sjúkrakostnaðar, aukins kostnaðar, sjúkraflutnings, flutnings á látnum og kostnaðar vegna ferðarofs. 
  • Farangurstrygging greiðir bætur á vátryggðum farangri. 
  • Eigin áhætta í farangurstjónum er 25% af tjónsupphæð. 
  • Eigin áhætta vegna sjúkrakostnaðar erlendis eru í F plús 2 og F plús 3. 
Iðgjald fyrir Ferðatryggingu F plús er fast og ekki sundurliðað á einstaka þætti. Þá skiptir ekki máli hversu lengi ferðin varir eða hversu margir eru að ferðast, svo framarlega að þeir uppfylli skilyrði skilmála um þá sem vátryggingin gildir fyrir. Skilmálar Ferðatryggingar F plús eru þeir sömu og í F plús fjölskyldutryggingu viðkomandi.

Nánari upplýsingar um ferðatryggingar í F plús 2, 3 og 4 en þessar má geta að ferðatryggingar eru ekki innifaldar í F plús 1.

Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað. Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.