Hleð spilara!

Ferðatrygging

Ferðatrygging gildir fyrir ferðalag erlendis og er hægt að sníða að þörfum hvers og eins.


Ferðatrygging hentar sérstaklega þeim sem ætla ferðast lengur en ferðatími F plús gerir ráð fyrir eða ef F plús fjölskyldutrygging er ekki til staðar. Ferðatrygging er kjörinn valkostur fyrir þá sem ætla ferðast utan alfaraleiða eða um hættulegar slóðir. Tryggingin er sniðin að þörfum hvers og eins þar sem gildistíminn er skilgreindur í vátryggingarskírteininu ásamt völdum bótafjárhæðum.

Hægt er að velja um eftirtalda bótaþætti:
•    Ferðaslysatryggingu sem felur í sér örorku- og dánarbætur ef slys verður

•    Sjúkrakostnaðartrygging erlendis sem greiðir bætur vegna útlagðs sjúkrakostnaðar

•    Farangurstrygging sem greiðir bætur á tryggðum farangri í ferðalaginu 

Einnig er hægt að sértryggja ákveðna muni og tryggja fyrir tímabundnum missi starfsorku.

Iðgjald ferðatryggingar ræðst af þeim bótaþáttum og fjárhæðum sem valdar eru ásamt áfangastað innan eða utan Evrópu.

Ferðatryggingar eru almennt innifaldar í F plús 2, F plús 3 og F plús 4 fjölskyldutryggingum fyrir ferðalög í allt að 92 daga en einnig er hægt að kaupa framlengingu á ferðatryggingu F plús. Nánari upplýsingar um ferðatryggingar F plús má fá hér

Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað. Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.