Hleð spilara!
Farseðlatrygging
Trygging vegna fyrirframgreidds ferðakostnaðar sem vátryggður á ekki rétt á að fá endurgreiddan ef hann neyðist til að hætta við ferð sína
Félagið greiðir bætur vegna fyrirframgreidds ferðakostnaðar sem vátryggður á ekki rétt á að fá endurgreiddan ef hann neyðist til að hætta við ferð sína áður en farið er frá Íslandi, vegna alvarlegs slyss eða skyndilegra veikinda, ennfremur vegna andláts, alvarlegs slyss eða skyndilegra veikinda maka, foreldra, barna, tengdabarna og systkina, sem og vegna verulegs eignatjóns á heimili eða einkafyrirtæki vátryggðs.
Aldrei eru greiddar bætur fyrir hærri upphæð en búið er að borga í fyrirframgreiddan ferðakostnað. Ekki eru greiddar bætur vegna sjúkdóms sem er fyrir hendi áður en tryggingin er tekin.Farseðlatryggingu verður að kaupa innan við viku frá því að gengið var frá greiðslu á ferð og framvísa ber kvittun um greiðslu ferðarinnar.
Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað. Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
