Ferðalög fólks aukast stöðugt bæði innanlands og utan. Þegar fólk ferðast innanlands nýtur það innlendrar heilbrigðisþjónustu ef slys eða veikindi ber að höndum. Hins vegar er annað uppi á teningnum þegar fólk er á ferðalögum erlendis. Það getur bæði verið erfiðleikum háð að finna læknisþjónustu og það getur verið mjög kostnaðarsamt. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir alla sem ferðast til útlanda að vera vel tryggðir.

Nokkrar leiðir eru til þess að tryggja sig á ferðalögum erlendis:

Hægt er að kaupa sjálfstæðar ferðatryggingar hjá VÍS fyrir hvert einstakt ferðalag. Þær er hægt að kaupa stakar eða í samsettri ferðatryggingu. Kaupa þarf tryggingu fyrir hvern ferðalang. Tryggingin gildir aðeins þann tíma sem skilgreindur er í tryggingarskírteininu. Nánari upplýsingar um samsetta ferðatryggingu.

Í F plús 2, F plús 3 og F plús 4 eru ferðatryggingar innifaldar - án aukakostnaðar og þurfa þeir sem eru með þær tryggingar ekki samsetta ferðatryggingu. Nánari upplýsingar um ferðatryggingu F plús.

Þegar Íslendingar ferðast í löndum Evrópusambandsins þá eiga þeir rétt á þjónustu sjúkrahúsa í almenna heilbrigðiskerfinu samkvæmt samningum við Evrópusambandið. Þó ber að athuga að ýmis annar kostnaður getur fallið til á ferðalögum erlendis, svo sem sjúkraflutningur eða ef um einkasjúkrahús er að ræða.

Til þess að hægt sé að fá þessa þjónustu þarf fólk að hafa með sér evrópska sjúkratryggingakortið. Kortið fæst hjá Sjúkratryggingum Íslands og er einfaldast að sækja um kortið á heimasíðu þeirra. Það eykur öryggi ferðamanna að hafa kortið einnig með sér á ferðalögum.