Víðtæk eignatrygging
Víðtæk eignatrygging ("all risk") er gjarnan tekin á einstaka dýra muni sem fólk tekur með sér vegna vinnu eða á ferðalögum, svo sem myndavélar, hljóðfæri, myndbandsupptökuvélar og fleiri samskonar hluti.
Þessir hlutir eru oftast innifaldir í fjölskyldutryggingum sem hluti af innbúi en víðtæk eignatrygging er með mun víðtækara bótasvið, og bætir tjón á hinum vátryggða hlut af völdum skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi, notkun og/eða geymslu.
Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum meðan tryggðir hlutir eru í umsjá vátryggðs.
Þeir sem eru með fjölskyldutryggingu hjá VÍS njóta sérstakra afsláttarkjara af Víðtækri eignatryggingu og þessi trygging stendur eingöngu þeim til boða sem eru með önnur tryggingaviðskipti sín hjá VÍS.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja tjón á heimilum. Lesa má allt um þær hér eða á Forvarnaheimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
