Hleð spilara!
Heimilistrygging
Heimilistryggingin hentar þeim sem eingöngu vilja tryggja eigur sínar og sig gagnvart skaðabótaábyrgð þriðja aðila.
Heimilistrygging veitir grunnvernd fyrir innbúið þar sem innbúið er tryggt fyrir bruna, vatni og innbroti. Heimilistrygging felur einnig í sér bætur vegna afnotamissis húsnæðis og greiðslukortatryggingu vegna sviksamlegrar notkunar á greiðslukorti sem hefur tapast.
Ábyrgðartrygging einstaklings bætir muna- og líkamstjón sem vátryggður veldur öðrum og ber ábyrgð á samkvæmt skaðabótalögum.
Hægt er að bæta við innbúskaskói sem er valþáttur í Heimilistryggingu VÍS.
Hér er má skoða bæklinginn „Hvernig röðum við saman tryggingum okkar?“ en þar er samanburður á tryggingum fyrir fjölskyldur og heimili.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja tjón á heimilum. Lesa má allt um þær hér eða á Forvarnaheimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
