Hleð spilara!

Verðmæti innbús

Allt of oft fylgir fréttum um bruna að innbú fólks hafi verið vantryggt. Oft og tíðum stafar það af hugsunarleysi  en ekki áhugaleysi á að hafa tryggingarnar í góðu lagi. Verðmæti innbús vex með tíð og tíma og iðulega án þess að fólk geri sér grein fyrir því. Fjölskyldan stækkar, skipt er um húsnæði og innbú endurnýjað.

Það er mikilvægt að fólk setjist niður einu sinni á ári, t.d. um áramót, og fari yfir hvert sé eðlilegt verðmæti innbúsins. Vátryggingarfjárhæðin kemur fram á yfirliti um endurnýjun. Ef það er ekki fyrir hendi þá er mjög einfalt og fljótlegt að fá upplýsingar hjá VÍS um vátryggingarfjárhæðina. Hægt er að hringja í þjónustuver félagsins í síma 560 5000 eða senda okkur tölvupóst á netfangið upplysingar@vis.is

Í almennri innbústryggingu er ákveðið hámark á bótum í hverju einstöku tjóni vegna muna í sérgreindu innbúi sem svo er kallað, t.d. vegna skartgripa, málverka, myndavéla o.fl. Hámarkið er miðað við hlutfall af vátryggingarfjárhæðinni. Þess vegna er mikilvægt fyrir fólk að tryggja sérstaklega einstaka verðmæta hluti sem eru í eigu þess, eins og málverk, skartgripi, myndavélar o.fl. með svokallaðri víðtækri eignatryggingu.

Til þess að auðvelda fólki samanburð þá hefur verið útbúin eftirfarandi viðmiðunartafla um verðmæti almenns innbús eftir mismunandi stærð húsnæðis og fjölskyldu. Reiknaðu út verðmæti innbús.


Fermetrar 1-2 í heimili 3-4 í heimili 5+ í heimili
60 - 100 7.500.000 9.370.000 11.250.000
100 - 150 9.370.000 12.070.000 13.010.000
150 - 200 12.070.000 13.940.000 14.880.000
200+ 14.880.000 18.630.000 22.380.000

Til baka