Hleð spilara!

Flutningur á búslóð

Þegar flytja þarf búferlum er nauðsynlegt að ganga þannig frá búslóð að tjón hljótist ekki af í flutningunum. Þetta á bæði við þegar flytja þarf búslóð milli landa en einnig og ekki síður þegar flutt er innanlands. Vandaður frágangur skilar búslóðinni oftast heilli á leiðarenda.

Oft og tíðum eru mikil verðmæti bundin í búslóð og þó að hægt sé að tryggja sig fyrir ýmsum skakkaföllum er aldrei hægt að tryggja sig fyrir tilfinningalegu tjóni. Við bendum á að hægt er að leita til fagfólks til að fá upplýsingar um hvernig búa þarf um búslóð í flutningum þannig að hún verði ekki fyrir skemmdum.

Þó að pökkun sé góð er aldrei hægt að vera öruggur um að ekki verði tjón. Þess vegna er nauðsynlegt að tryggja búslóðina. VÍS býður upp á tryggingu sem tekur til tjóns sem verður á búslóð í flutningi, hvort sem um er að ræða skemmdir eða þjófnað. Tryggingartaki ber þó ákveðna eigin áhættu sem hann ákveður við töku tryggingar.

Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir verðmæti búslóðarinnar og til þess er gott að fylla út þar til gerðan  lista. Hann auðveldar einnig uppgjör tjóns ef til kemur. Til þess að auðvelda fólki að reikna út verðmæti búslóðar í flutningum hefur verið útbúið reikniforrit.

Til baka