F plús 4
F plús 4 er víðtækasta fjölskyldutrygging VÍS. Bótasvið hennar er víðtækara en í öðrum fjölskyldutryggingum, bótafjárhæðir hærri og eigin áhættur lægri.
Með F plús 4 ertu viss um að bótafjárhæðir séu með því hæsta sem gerist á markaðnum í dag. Grunnurinn í F plús 4 er að tryggja innbúið fyrir bruna, vatni og innbroti ásamt því að innbúskaskó er ávallt innifalið í F plús 4.
Innifalið í tryggingunni er meðal annars bilanatrygging raftækja, frítímaslysatrygging, málskostnaðartrygging, sjúkrahúslegutrygging fyrir 16-60 ára. F plús 4 býður einnig upp á ferðatryggingar erlendis s.s. sjúkrahúsdvöl erlendis, forfallatrygging, farangurs- og ferðarofstrygging
F plús veitir eigendum ökutækis með kaskó tryggingu hjá VÍS aukna vernd, en þeir eiga rétt á bílaleigubíl í allt að 5 daga lendi þeir í kaskó tjóni.
Hér er samanburðartafla á F plús tryggingunum sem er ætlað að veita góða yfirsýn og auðvelda val á þeirri tryggingu sem hentar hverjum og einum.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja slys og tjón. Algengustu slysin og tjónin í F plús tryggingum verða á heimilum og í frítíma fólks. Hægt er að koma í veg fyrir slík slys og tjón með því að kynna sér allt um forvarnir í frítíma og á heimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.Á Forvarnaheimilinu er hægt að fá ítarlegar upplýsingar um bruna-, innbrot- og vatnsvarnir.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
