Umönnunartrygging
Umönnunartrygging bætir kostnað við vistun kattarins á kattahóteli ef ekki er hægt að annast hann heima vegna tímabundins sjúkdóms eða slyss fjölskyldumeðlims.
Umönnunartrygging greiðir fyrir vistun og gæslu kattar á kattahóteli ef tryggingartaki eða annar fjölskyldumeðlimur, með sama lögheimili og býr á sama stað, slasast svo alvarlega eða veikist að ekki er hægt að veita kettinum þá umönnun heima fyrir sem hann þarfnast.
Greiddar eru bætur vegna dvalar á kattahóteli í allt að 60 daga á hverju tryggingartímabili. Framvísa þarf læknisvottorði vegna veikinda eða slyss eiganda eða umsjónarmanns ásamt reikningi frá dýrahóteli.
Hægt er að tryggja köttinn frá 8 vikna aldri og gildir tryggingin alla ævi kattarins.
Engin eigin áhætta er í umönnunartryggingu Kattaverndar VÍS.
Hægt er að kaupa umönnunartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Kattavernd VÍS.
Við töku umönunnartryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:
- Beiðni
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
