Sjúkrakostnaður vegna veikinda eða slysa nemur oft háum fjárhæðum. Tíðar heimsóknir til dýralæknis, lyfjakostnaður og einfaldar aðgerðir geta oltið á tugum og jafnvel hundruðum þúsunda króna.

Hægt er að tryggja köttinn frá 8 vikna aldri og getur hann verið tryggður til æviloka. Bótafjárhæðin lækkar um 10% frá því ári sem kötturinn verður 7 ára og síðan um 10% árlega næstu 3 árin þar á eftir en helst svo óbreytt.

Eigin áhætta í hverju tjóni er tvíþætt. Annarsvegar föst fjárhæð og síðan 10% af lækniskostnaði umfram föstu fjárhæðina. Föst eigin áhættan gildir fyrir hvert 100 daga tímabil og hefst við fyrstu heimsókn til dýralæknis.
    
    Dæmi:
       Reikningur frá dýralækni    100.000 kr
       Föst eigin áhætta*                 10.000 kr
      10% eigin áhætta                      9.000 kr
     * Föst eigin áhætta reiknast ekki aftur fyrr en eftir 100 daga

Hægt er að kaupa Sjúkrakostnaðartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Kattavernd VÍS.

Við töku sjúkrakostnaðartryggingar þarf að skila inn eftirfarandi:
  • Beiðni, dýralæknisvottorði ef kötturinn ef 5 ára eða eldri