Hleð spilara!

Fróðleikur

Ýmsir fróðleiksmolar um ketti, umhirðu þeirra, samstarfsaðila VÍS varðandi kattatryggingar og það sem er gott að vita þegar maður hyggst tryggja ketti.


Kattakassi og kattasandur

Þegar þú kemur heim með kettlinginn þá verður að vera tilbúinn kattakassi með passlega háum köntum fyrir hann. Ef kettlingurinn var orðinn kassavanur þegar hann var tekinn frá læðunni, þá á ekki að vera neitt vandamál að fá hann til þess að nota kattakassa á nýja heimilinu.

Kettir eru mjög þrifalegir og auðvelt er að gera þá kassavana. Ef kettlingurinn gerir þarfir sínar annars staðar, þá er það oftast vegna þess að kattakassinn hefur ekki verið þrifinn. Hins vegar verður að varast að nota sterkt hreinsiefni þegar kattakassinn er þrifinn, það gæti nefnilega orðið til þess að kötturinn neiti að nota hann. Kettir eru með mjög næmt lyktarskyn og til dæmis getur notkun efna með sítrónulykt valdið því að kettirnir mótmæli.

Ef kötturinn neitar að nota kattakassann getur það verið vegna þess að hann sé að mótmæla einhverju. Hann gæti einfaldlega verið að biðja um meiri athygli. Það er líka mögulegt að kötturinn sé veikur, hann gæti til dæmis verið með blöðrubólgu og þá þarf að láta dýralækni líta á hann.

Til eru margar gerðir kattakassa og kattasands. Kattakassar með loki eru heppilegir að því leyti að kattasandurinn dreifist ekki um gólfið í kringum hann. Kattakassa og kattasand er hægt að kaupa í mörgum stórum matvöruverslunum og gæludýrabúðum. Prófið mismunandi gerðir kattasands, það er mjög einstaklingsbundið hvaða sandur hentar best.

Ef ekkert af þessu virkar og kötturinn neitar staðfastlega að nota kattakassann, leitið þá hjálpar dýralæknis.

Fóðrun

Kettlingar eru með lítinn maga og vilja þess vegna borða oft en lítið í einu. Fylgist nokkuð vel með hversu mikið kettlingurinn borðar á dag. Margir ræktendur láta kaupendur kettlinga fá lista yfir það sem kettlingarnir eiga að borða þegar á nýja heimilið er komið.

Það kemur sjaldan fyrir að kettlingar vilji ekki borða. Ef litli kötturinn þinn neitar að borða, þá getur það verið út af því að maturinn er of kaldur. Kettir vilja borða herbergisheitan eða helst volgan mat.

Bæli kattarins

Fyrsta nótt kettlingsins á nýja heimilinu verður eflaust erfið. Kettlingurinn á örugglega eftir að heimta að fá að liggja uppi í rúmi hjá einhverjum. Ef maður er á móti því að hafa kettlinginn uppi í rúmi hjá sér er farsælast að loka hurðinni að svefnherberginu fyrstu næturnar. Útbúið svefnpláss fyrir kettlinginn annars staðar, hægt er að kaupa sérstök bæli sem hengd eru á ofna, kettir eru mjög hrifnir af þeim, sérstaklega þegar kalt er í veðri.

Ef þú hefur ekkert á móti því að kötturinn sofi í rúminu þínu þá er náttúrulega ekkert því til fyrirstöðu. Hann á eftir að koma sér þægilega fyrir, leggjast þversum yfir þig og mala svo hátt að rúmið hristist. Þetta venst fljótlega og margur eigandinn getur ekki sofið án þess að hafa einn (eða fleiri) malandi ketti uppi í rúminu.

Að taka tryggingu fyrir ketti

Vátryggingin tekur gildi um leið og VÍS móttekur og samþykkir vátryggingarbeiðni. Vátryggingin tekur ekki til sjúkdóms sem á upptök sín fyrstu 14 dagana sem hún er í gildi. Þetta á hins vegar ekki við um áverka af völdum slyss, vátryggingin bætir strax bótaskyld tjón vegna slíks atburðar. Sérstök ákvæði eiga við um suma sjúkdóma og er nánar fjallað um það í skilmálum vátryggingarinnar.

Þegar sótt er um tryggingu er nauðsynlegt að leggja fram dýralæknisvottorð sem er ekki eldra en 30 daga ef:

  • Köttur er 5 ára gamall eða eldri
  • Hann hefur verið veikur eða slasast*
  • Óskað er líftryggingarfjárhæðar sem er hærri en 50.000 kr.

Þegar vátryggingarbeiðni er lögð fram þurfa m.a. að liggja fyrir upplýsingar um einstaklingsmerkingu kattarins, svo sem örmerki eða húðflúrsnúmer.

*Hafi köttur veikst eða slasast áður en vátryggingarbeiðni var útfyllt er nauðsynlegt að tilgreina dagsetningu og eðli meiðsla. Í flestum tilvikum er óskað eftir vottorði frá dýralækni og ef svo er mun verða haft samband við vátryggingartaka.

Samstarfsaðilar VÍS varðandi Kattavernd

Kynjakettir, Kattaræktarfélag Íslands

Kynjakettir, Kattaræktarfélag Íslands var stofnað þann 5. apríl 1990. Forvígismenn stofnunar félagsins voru Þórður J. Þórisson og Vignir Jónsson. Stofnfundinn sátu 25 manns, en stofnfélagar voru um 40. Í dag eru félagsmenn um 200. Meðlimir Kynjakatta eru kattaræktendur, kattaeigendur og áhugafólk um ketti. Kynjakettir eru meðlimir í FIFé, sem eru alþjóðasamtök kattaræktarfélaga.

VÍS er einn af aðalbakhjörlum Kynjakatta.