Hleð spilara!

Ábyrgðartrygging

Veitir vernd gegn þeirri skaðabótaskyldu sem getur fallið á tryggingartaka sem eiganda kattarins, sé skaðabótaskyldan bein afleiðing af tjóni á mönnum og munum.


Ábyrgð félagsins vegna hvers einstaks tjóns takmarkast við þá bótafjárhæð sem tilgreind er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Verði fleiri en eitt tjónsatvik af sömu orsök teljast þau vera af völdum eins tjónsatburðar.

Hægt er að tryggja alla ketti, óháð aldri og gildir tryggingin til æviloka. Einstaka sveitarfélög gera kröfu um að kettir séu ábyrgðartryggðir og því er æskilegt að hver kanni málið hjá sínu sveitarfélagi.

Eigin áhætta er 10% í ábyrgðartryggingu eða ákveðið lágmark og hámark sem er tilgreint í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

Hægt er að kaupa ábyrgðartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Kattavernd VÍS.