Hleð spilara!
Líftrygging
Líftrygging er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja hundinn fyrir dauða af völdum sjúkdóms eða slyss.
Líftrygging greiðir bætur ef hundurinn deyr, slasast eða veikist svo illa að það þarf aflífun að mati dýralæknis. Sé hundurinn aflífaður greiðast fullar bætur. Hverfi hundurinn eða honum er stolið greiðast einnig bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði hundsins en það tekur mið af kaupverði hans og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar hundsins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hundsins. Ekki er greitt umfram markaðsvirði hundsins.
Hægt er að líftryggja hund frá 8 vikna aldri og gildir tryggingin þangað til hundurinn verður 10 ára, þó getur hún fallið úr gildi fyrr hjá einstaka tegundum. Bótafjárhæðin lækkar um 20% á ári eftir að hundurinn verður 7 ára.
Hámarks líftryggingarfjárhæð er 100.000 kr. nema hundurinn sé ættbókarfærður og skráður hjá HRFÍ eða búi yfir sérstökum eiginleikum t.d. vinnuhæfileikum samkvæmt prófum.
Hægt er að kaupa líftryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Hundavernd VÍS.
Við töku líftryggingarinnar þarf að skila inn eftirfarandi:

- 0 – 200 þús. kr. beiðni og vottorð dýralæknis ef hundurinn er 1 árs eða eldri
- 200+ þús. kr. beiðni, vottorð dýralæknis og vottorð frá HRFÍ
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?