Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

  • HRFÍ var stofnað í september 1969 og er félag allra hundeigenda á Íslandi
  • HRFÍ hefur það að markmiði sínu að stuðla að réttri meðferð, aðbúnaði og uppeldi hunda. Einnig að stuðla að góðum samskiptum milli hundeigenda, yfirvalda og almennings.
  • HRFÍ er málsvari hundeigenda gagnvart hinu opinbera, s.s. heilbrigðiseftirliti, umhverfisráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti o.s.frv.
  • HRFÍ býður upp á fræðslu fyrir verðandi hundeigendur. Einnig býður félagið upp á ýmiskonar fræðslufundi og námskeið fyrir félagsmenn sína.
  • HRFÍ rekur hundaskóla. Þar er boðið upp á ýmiskonar námskeið, t.d. hvolpanámskeið, hlýðninámskeið, vinnunámskeið, veiðinámskeið, hundafiminámskeið, sporleitarnámskeið o.fl.
  • HRFÍ heldur árlega ræktunarsýningar, vinnu-og veiðipróf, sporleitarpróf og skapgerðarpróf.
  • HRFÍ rekur skrifstofu sem er opin daglega. Skrifstofan er þjónustuaðili fyrir félagsmenn og hundeigendur á Íslandi.
  • HRFÍ gefur út eina „hundatímaritið ”á Íslandi, tímaritið heitir Sámur og kemur út 3-4 sinnum á ári.
  • HRFÍ er eina aðildarfélagið á Íslandi í NKU, samtökum norrænna hundaræktarfélaga og FCI, alþjóðlegum samtökum hundaræktarfélaga.

Nánári uppýsingar:

VÍS er einn af aðalstuðningsaðilum HRFÍ.