• Það er mikilvægt að þú getir treyst ræktandanum sem þú ætlar að kaupa hvolpinn hjá. Hundaræktarfélag Íslands hjálpar þér að komast í samband við ábyrga ræktendur.
  • Fáðu upplýsingar um hundategundina og mögulega sjúkdóma tengda henni hjá Hundaræktarfélagi Íslands og/eða dýralækni.
  • Biddu um að fá að skoða hvolpahópinn til þess að sjá hvernig þér líst á hann. Hvolparnir eiga að vera hreinir og frísklegir, athugið að augun og eyrun séu hrein. Ekki eiga sjást merki um að hvolparnir séu með niðurgang.
  • Athugaðu skapgerð foreldranna. Gott er að fá að sjá bæði tíkina og rakkann sé kostur á því.
  • Hvolpa ætti ekki að afhenda fyrr en þeir hafa náð átta vikna aldri.
  • Hundaræktarfélag Íslands veitir á heimasíðu sinni upplýsingar um hvaða kröfur eru gerðar til ræktenda. Kynnið ykkur þær áður en hvolpurinn er keyptur.
  • Tryggðu hvolpinn þinn svo fljótt sem mögulegt er, til þess að kostnaðurinn verði ekki of hár ef þú þarft að fara til dýralæknis með hann. Við hjá VÍS hjálpum þér að finna út hvers konar trygging hentar best hundinum þínum.

Gangi þér vel !

Að velja rétta hundategund

Hvaða tegund hentar þér ?

Núna ertu búinn að ákveða að kaupa hund og hugleiðir þá væntanlega hvaða hundategund hæfir þér best. Á að velja tík eða karlhund, fullorðinn hund eða hvolp, lítinn eða stóran hund, snögghærðan eða loðinn.

Það er margt sem þarf að taka ákvörðun um. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að þú átt eftir að eiga hundinn að vini í langan tíma, hundar geta lifað í allt að 15 ár. Hundategundirnar eru fjölmargar og hæfa ekki allar væntanlegum hundaeiganda, en allir ættu þó að geta fundið tegund við sitt hæfi.

Hvort viltu stóran eða lítinn hund?

Hvað finnst þér vera hæfileg stærð? Hundur sem er 10 kg eða 35kg að þyngd? Stærð og þyngd er mjög breytileg milli tegunda. Sumar hundategundir eru svo stórar að einungis fullorðið fólk ræður við að fara með þá í göngutúra. Ef þú ferðast mikið er betra að fá sér lítinn hund en stóran meðal annars vegna þess að hann tekur minna pláss. Er til dæmis nóg pláss í fjölskyldubílnum fyrir stóran séferhund eða þarf að kaupa nýjan bíl þegar hundurinn er kominn á heimilið?

Stærð húsnæðis

Stórir hundar geta hugsanlega búið í litlu húsnæði, sé þeim veittur möguleiki á nægri þjálfun og leik. Hugsaðu þig þó tvisvar um ef þú býrð í einsherbergja íbúð og langar að fá þér Sankti Bernharðshund, gólfplássið er hreinlega ekki nógu mikið. Stórir hundar eru þó oft mjög rólegir innanhúss á meðan litlir hundar hlaupa margir mikið um. Til dæmis eru litlu terrierhundakynin mjög aktív innandyra.

Hversu mikla hreyfingu getur þú veitt hundinum þínum?

Viltu helst geta farið í stutta og rólega göngutúra með hundinum þínum eða hreyfir þú þig mikið? Það er nauðsynlegt að vera raunsær, stórir hundar þurfa oft á mikilli hreyfingu að halda, allt að tveggja klukkustunda gönguferð á dag en minni hundum nægja styttri gönguferðir. Það er ekki nóg að hreyfa hundinn mikið um helgar og sleppa göngutúrunum á virku dögunum, hundurinn þinn þarfnast daglegrar hreyfingar. Hundar þurfa ekki eingöngu á líkamlegri þjálfun að halda heldur einnig andlegri. Hundar sem eru afskiptir eiga það til að finna sér sjálfir verkefni, eitthvað sem ekki er víst að þú verðir hrifinn af!

Hvort á að kaupa hreinræktaðan hund eða blendingshund?

Blendingshundur

Ef þú vilt fá hund með ákveðnu útliti og eiginleikum þá er valið auðvelt: kauptu hreinræktaðan hund. Ef þú kaupir svartan hvolp sem er sagður vera Labradorblendingur, þá er í raun ómögulegt að segja hvort hundurinn eigi eftir að líkjast svörtum Labradorhundi þegar hann verður fullorðinn nema kannski eingöngu að litnum til. Hundar eru eins og mannfólkið mismunandi einstaklingar og skapgerðir hunda geta verið mjög breytilegar meira að segja innan sömu tegundar. Ef maður blandar saman tveimur hundategundum sem hafa mjög ólíka eiginleika þá er alveg ómögulegt að segja hvernig afkvæmin verða. Fyrstu kynslóðar blendingshvolpar (undan hreinræktuðum hundum) eru oft frískari en aðrir hreinræktaðir hundar af þeirri ástæðu að líkurnar á göllum og sjúkdómum sem tengjast ákveðnum hundategundum "þynnast út" við blöndunina. Hins vegar er uppruni blendingshunda oft ókunnur og nær ómögulegt að vita hvaða galla hundarnir sem þeir koma undan hafa haft.

Hreinræktaður hundur

Kaupir þú ættbókarfærðan hund ertu með tryggingu fyrir því að þú hafir fengið þann hund sem þú óskaðir. Vitað er hverjir forfeður hundsins eru og auðvelt er að grafast fyrir um skapgerðareinkenni þeirra og útlit. Þegar keyptur eru hvolpur þarf stundum að athuga hvort hann uppfyllir ýmis heilsufarsleg skilyrði. Til dæmis er heyrnarleysi algengt hjá hundum af sumum tegundum og þá þarf að heyrnarmæla hvolpana áður en þeir eru seldir. Hafðu samband við Hundaræktarfélag Íslands og athugaðu hvort einhverjar sérstakar reglur gildi um hundategundina sem þú hefur áhuga á.

Hvaða verkefnum hafa hundar af þessari tegund verið látnir sinna?

Flestar hundategundir hafa verið ræktaðar með einhverja ákveðna vinnu í huga, mun færri gæluhundakyn eru til. Áður fyrr og að vissu leyti enn þann dag í dag voru hundarnir notaðir sem veiðihundar, smalahundar og varðhundar. Þó svo að vinnuhundum hafi fækkað halda tegundirnar sérstökum eiginleikum sínum sem gera þær hæfar til mismunandi vinnu. Auðvelt er að kenna séferhundum að gæta hluta og smala fé og golden retrieverhundar eru góðir veiðihundar. Gæta verður þess að þessir hundarnir fái nóg að gera til þess að þeim leiðist ekki og fari að finna upp á einhverjum óknyttum.

Lokaorð

Þegar þú hefur fundið hundakyn sem hentar þér og aðila sem ræktar hunda af viðkomandi tegund þá er komið að því að velja hvolp. Útskýrðu vel fyrir ræktandanum hvaða væntingar þú hefur og hvernig hundi þú leitar að. Þá getur ræktandinn e.t.v. hjálpað þér að velja hvolp sem að hentar þér. Hundar eru ólíkir einstaklingar og geta verið mjög mismunandi, jafnvel þótt þeir séu af sömu tegund.

Alla hunda þarf að aga og þeir verða að geta hlýtt grunnskipunum. Það skiptir engu máli hvort um lítinn eða stóran hund er að ræða, til þess að sambýli manns og hunds gangi vel, verður hundurinn að láta að stjórn og kunna venjulega "hundasiði". Það styrkir tengslin milli þín og hundsins ef þú gerir hlýðniæfingar með hundinum og samband ykkar verður auðveldara og skemmtilegra fyrir vikið. Það er góð byrjun að skrá hvolpinn á hvolpanámskeið!

Gangi þér vel með nýja vininn þinn !