Að tryggja hund
Hlutir sem er gott að vita þegar maður ákveður að tryggja hundinn sinn.
Vátryggingin tekur gildi um leið og VÍS móttekur og samþykkir vátryggingarbeiðni. Vátryggingin tekur ekki til sjúkdóms sem á upptök sín fyrstu 14 dagana sem hún er í gildi. Þetta á hins vegar ekki við um áverka af völdum slyss, vátryggingin bætir strax bótaskyld tjón vegna slíks atburðar. Sérstök ákvæði eiga við um suma sjúkdóma og er nánar fjallað um það í skilmálum vátryggingarinnar.
Þegar sótt er um tryggingu er nauðsynlegt að leggja fram dýralæknisvottorð sem er ekki eldra en 30 daga ef:
- Hundur er 1 ára gamall eða eldri
- Hann hefur verið veikur eða slasast*
- Óskað er líftryggingarfjárhæðar sem er hærri en 200.000 kr.
Þegar vátryggingarbeiðni er lögð fram þurfa m.a. að liggja fyrir upplýsingar um einstaklingsmerkingu hundsins, svo sem örmerki eða húðflúrsnúmer.
*Hafi hundur veikst eða slasast áður en vátryggingarbeiðni var útfyllt, þá er nauðsynlegt að tilgreina dagsetningu og eðli meiðsla. Í flestum tilvikum er óskað eftir vottorði frá dýralækni og ef svo er mun verða haft samband við vátryggingartaka.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
