Hleð spilara!
Afmælishátíð HRFÍ
28.08.2009 14:57

Í tilefni af 40 ára afmæli Hundaræktarfélags Íslands var haldin afmælishátíð í reiðhöll Fáks í gærkvöldi. Hátíðin bar yfirskriftina Hundar til gagns og gleði. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg og ýmislegt spennandi var í boði fyrir alla aldurshópa. Meðal dagskrárliða var ljósmyndasýning Rakelar Óskar Sigurðardóttur sem sýndi skemmtilegar myndir af hundum við hin ýmsu tækifæri. VÍS bauð þeim hundum sem tryggðir eru hjá VÍS upp á ókeypis myndatöku sem Rakel tók á sýningunni. Afmælishátíðin þóttist takast mjög vel. Framundan hjá HRFÍ er alþjóðleg hundasýning en hún fer fram helgina 3. - 4. október 2009 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur sunnudaginn 6. september 2009.
VÍS er stoltur styrktaraðili HRFÍ.
Til baka
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
