Hleð spilara!

Ábyrgðartrygging

Veitir vernd gegn þeirri skaðabótaskyldu sem getur fallið á tryggingartaka sem eiganda hundsins, sé skaðabótaskyldan bein afleiðing af tjóni á mönnum og munum.


Ábyrgð félagsins vegna hvers einstaks tjóns takmarkast við þá bótafjárhæð sem tilgreind er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Verði fleiri en eitt tjónsatvik af sömu orsök teljast þau vera af völdum eins tjónsatburðar.

Hægt er að tryggja alla hunda, óháð aldri og gildir tryggingin til æviloka. Mörg sveitarfélög hafa ábyrgðartryggingu fyrir hunda innifalda í leyfisgjaldi og þarf þá ekki að kaupa hana sérstaklega.

Eigin áhætta er 10% í ábyrgðartryggingu eða ákveðið lágmark og hámark sem er tilgreint í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

Hægt er að kaupa ábyrgðartryggingu eina og sér eða til viðbótar við aðrar tryggingar í Hundavernd VÍS.

Við töku ábyrgðartryggingar hunda þarf að skila inn eftirfarandi:

  • Beiðni