Hleð spilara!
Takmörkuð líftrygging
Takmörkuð líftrygging er góður kostur fyrir þá sem vilja líftryggja hestinn fyrir óvæntum áföllum vegna sjúkdóma, slyss eða hesturinn hverfi.
Líftryggingin greiðir bætur ef hestur deyr eða slasast svo illa að það þurfi tafarlausa aflífun að mati dýralæknis. Sé hestur felldur greiðast fullar bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði hestsins en það tekur mið af kaupverði hans og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins.
Bótafjárhæð líftryggingarinnar lækkar um 20% þegar hesturinn verður 19 ára og síðan um 20% af eftirstöðvum fjárhæðarinnar hverju sinni við endurnýjun eftir það.
Hægt er að kaupa takmarkaða líftryggingu eina og sér eða sem viðbót við aðra tryggingu í Hestavernd VÍS.
Engin eigin áhætta er í takmarkaðri líftryggingu VÍS
Við töku takmörkuðu líftryggingarinnar þarf að skila inn eftirfarandi, hverju þarf að skila inn hverju sinni fer eftir verðmæti hests:
- 0 – 1 mkr: beiðni
- 1 – 5 mkr: beiðni og hesturinn skoðaður af skoðunarmanni VÍS
- 5+ mkr: beiðni og læknisvottorð
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
