Hleð spilara!

Sjúkrakostnaðartrygging

Sjúkrakostnaðartrygging færir hestum bestu meðhöndlun sem völ er á ef hesturinn veikist eða slasast. Tryggingin hentar öllum hestum, jafnt reiðhestum, kynbótahryssum sem stóðhestum.


Sjúkrakostnaður vegna veikinda eða slysa nemur oft háum fjárhæðum. Tíðar heimsóknir til dýralæknis, lyfjakostnaður og einfaldar aðgerðir geta oltið á tugum og jafnvel hundruðum þúsunda króna.

Sjúkrakostnaðartryggingin greiðir lækniskostnað sem eru greiðslur til dýralækna, dýralæknastofa og dýraspítala á Íslandi vegna skoðunar og meðferðar vegna sjúkdóma og slysa. Auk þess eru greidd lyf sem sömu aðilar afhenda eða ávísa vegna sjúkdóms og slysa. Tryggingin tekur einnig til nauðsynlegs og eðlilegs kostnaðar við flutning á hesti til og frá dýralækni. Hámarksgreiðsla í hverju tjóni og á hverju ári kemur fram á skírteini fyrir hvert vátryggingartímabil.

Eigin áhætta í hverju tjóni er tvíþætt. Annarsvegar föst fjárhæð og síðan 10% af lækniskostnaði umfram föstu fjárhæðina. Föst eigin áhættan gildir fyrir hvert 100 daga tímabil.
    
    Dæmi:
        Reikningur frá dýralækni    100.000 kr
        Föst eigin áhætta*                 10.000 kr
        10% eigin áhætta                     9.000 kr
      * Föst eigin áhætta reiknast ekki aftur fyrr en eftir 100 daga


Við töku sjúkrakostnaðartryggingar þarf að skila inn beiðni.

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.