Hleð spilara!

Kynbótahryssutrygging

Kynbótahryssutrygging er sérsniðin að ræktunarhryssum ásamt því að tryggja fyl- og folald fyrstu 30 daga ævinnar.


Afnotamissistrygging greiðir bætur ef fella þarf hryssuna þar sem hún hefur verið úrskurðuð ónothæf til ræktunar, í kjölfar sjúkdóms eða slyss. Geti hryssan lifað áfram að mati dýralæknis og eigandi kýs að halda hryssunni greiðast hlutabætur sem eru andvirði dánarbóta að frádregnum 100 þús kr. Skráningu er breytt í WorldFeng þar sem ekki má nota hestin í reið eða keppni.

Líftryggingin greiðir bætur ef hryssan deyr eða slasast svo illa að það þurfi að fella hana að mati dýralæknis. Sé hryssan felld greiðast fullar bætur. Líftryggingarfjárhæð á að endurspegla markaðsvirði hryssunar en það tekur mið af kaupverði hennar og viðurkenndum verðleikum. Ef eiginleikar hryssunar breytast er hægt að breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hryssunar.

Bótafjárhæð líftryggingarinnar lækkar um 20% þegar hesturinn verður 19 ára og síðan um 20% af eftirstöðvum fjárhæðarinnar hverju sinni við endurnýjun eftir það.

Fyl- og folaldatrygging greiðir 10% bætur af líftryggingarfjárhæð hryssunar ef hryssa lætur fyli, það skilar sér ekki, nýfætt folald drepst eða þarf að aflífa innan 30 daga frá fæðingu vegna meiðsla, sjúkdóma eða fæðingargalla. Skynsamlegt er að ganga frá sérstakri tryggingu fyrir folaldið áður en kynbótahryssutryggingin hættir að gilda fyrir það við 30 daga aldur.

Engin eigin áhætta er í líftryggingu Kynbótahryssutryggingu VÍS

Við töku kynbótahestatryggingar þarf að skila inn eftirfarandi, hverju þarf að skila inn hverju sinni fer eftir verðmæti hests:
  • 0 – 500 þús kr:  beiðni
  • 501 – 5 mkr:      beiðni og hesturinn skoðaður af skoðunarmanni VÍS
  • 5+ mkr:               beiðni, læknisvottorð og röntgen myndir

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.

Góðhestatrygging, reiðhestatrygging og kynbótahryssutrygging innihalda allar líftryggingu. Auk þess má kaupa líftryggingu eina sér og er hún kölluð takmörkuð líftrygging. Líftryggingarnar í Hestavernd VÍS eru tvenns konar og felst mismunur þeirra í ólíku bótasviði. Líftryggingin í góðhestatryggingu er víðtækari en aðrar líftryggingar.

Líftryggingarnar eiga það sameiginlegt að greiddar eru bætur ef hesturinn deyr eða hann þarf að aflífa af völdum sjúkdóms eða slyss en þó ekki alltaf vegna sömu sjúkdóma eða slysa. Þá eru greiddar bætur ef hesturinn hverfur eða honum er stolið.

Hægt er að kaupa líftryggingu á folald og getur hrossið verið líftryggt til þess árs sem það verður 23 vetra. Vátryggingarfjárhæðin lækkar árlega um 20% frá því ári sem hesturinn verður 19 vetra.

Til þess að vátryggingarverndin sé sem best þarf líftryggingarfjárhæðin að endurspegla markaðsvirði hrossins á hverjum tíma. Ef eiginleikar hestsins breytast er hægt að hafa samband við VÍS og breyta fjárhæð líftryggingarinnar í samræmi við breytt verðmæti hestsins. Ekki er hægt að líftryggja hest eða hækka vátryggingarfjárhæðina eftir að hesturinn verður 16 vetra. Tryggingin bætir ekki kostnað af völdum veikinda eða meiðsla sem voru til staðar eða áttu sér upphaf áður en tryggingin var keypt.