Hóplíftrygging hesta

Hóplíftrygging hesta er hagkvæm lausn fyrir þá sem vilja tryggja marga hesta í einu.


Hóplíftrygging hesta er ætluð fyrir minnst 15 hesta þar sem tryggingarverðmæti hvers hests er að hámarki 2.000.000 kr.

Hægt er að kaupa stakar tryggingar eða raða fleirum saman sem viðbót en þær tryggingar sem eru í boði fyrir hesta í hóptryggingu aukalega eru:
  • Góðhestatrygging
  • Reiðhestatrygging
  • Takmörkuð líftrygging
  • Kynbótahryssutrygging
Eigin áhætta í hverju tjóni fyrir hesta í hóplíftryggingu er 25% bótafjárhæð hests sem verður fyrir tjóni.

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.