Skaflasár
Með hækkandi sól og batnandi veðri lengist viðverutími okkar hestamanna til muna í hesthúsunum. Um leið eykst sá tími sem hrossin eru úti í gerðum. En þótt það sé skemmtilegra að horfa á hestana leika og viðra sig úti í gerði á góðviðrisdögum í stað þess að húka inn í stíu getur gerðisdvölin haft slæmar afleiðingar. Hestar sem hafa verið lengi úti í gerði verða oft þyrstir, svangir og pirraðir og það eykur hættuna á áflogum. Slagsmál milli hrossa eru oftast meinlaus, smáskærur milli vina, en gamanið kárnar fljótt ef hrossin eru á skaflajárnum. Skaflarnir geta verið stórt vandamál á snjóléttum vetrum því þá eyðast skaflarnir og karbít teinninn í skaflinum stendur einn eftir eins og beitt spjót.
Þegar hross fá spark í sig frá skaflajárnuðum hesti koma oft ljótir skurðir sem þarf að sauma og hins vegar lítil göt sem eru djúp og lokast fljótt. Í þessum litlum götum eða stungum sem karbít teinnin skilur eftir sig lokast oft óhreinindi inni. Í byrjun líta þessi litlu göt sakleysislega út en á öðrum og þriðja degi bólgna þau upp. Oftast grefur í þeim ef þau eru djúp. Því er mjög mikilvægt að meðhöndla þau fljótt, þ.e.a.s. áður en allt fer á versta veg.
Einkenni
- Roði í húð.
- Staðbundin bólga.
- Hiti.
- Sársauki, viðkvæmni.
Meðhöndlun
- Þrífa sárið með sótthreinsandi vökva (spritt, sáravatn, klórhexidín).
- Klippa burt hárin í kringum sárið.
- Kreysta óhreinindi út úr sárinu og jafnvel að fá smá blæðingu úr því.
- Endurtaka 1-2 á dag.
- Ef ykkur sýnist þetta meira en þið ráðið við borgar sig að kalla á dýralækni.
Sár á fótum þar sem lítið hold er geta reynst þrálát og litlir skurðir sem fá ekki meðhöndlun geta endað í ofholdi sem er oftast þrálátt. Það er gott ráð að velja saman hesta sem eiga að fara út í gerði og leyfa nýjum hestum að kynnast áður en þeim er sleppt saman. Í stórum hesthúsum borgar sig ekki að láta alla hestana út í einu, vegna þess að þá er meiri hætta á áflogum og slysum. Ágæt regla er að taka hesta af skaflaskeifum um leið og nagladekkin eru tekin undan bílnum á vorin.
Til baka- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
