Hleð spilara!


Hrossasótt

Nú þegar líða tekur að jólum og hestamenn taka gæðinga sína á hús ber ýmislegt að varast. Sjúkdómar sem valda hrossasótt eru alvarlegustu sjúkdómar sem hrjá íslensk hross. Hrossasótt er lýsing á einkennum, oftast kviðverkjum, sem geta stafað af fjölmörgum sjúkdómum í meltingarvegi.

Snöggar breytingar sem snúa að fóðrun og þjálfun virðast vera þeir þættir sem auka mest líkurnar á því að hross fái einkenni hrossasóttar. Mikilvægt er að haga fóðrun þannig að gefið sé ávallt á svipuðum tíma dags. Of mikil og skörp þjálfun á hrossum sem hafa verið í hvíld í marga mánuði getur einnig valdið þessum einkennum. Ofát á heyi, kraftfóðri eða lýsi getur hæglega dregið hross til dauða. Því er mikilvægt að fóðurgeymslur séu tryggilega lokaðar.

Hrossasóttareinkenni leyna sér sjaldnast. Hrossasótt er einn af þeim sjúkdómum sem hestaeigandinn tekur mjög fljótt eftir. Rétt viðbrögð eru að hringja strax í dýralækni sem gefur fyrirmæli um hvað eigi að gera þangað til hann kemur. Því fyrr sem dýralæknir kemur á staðinn því meiri líkur eru á lækningu. Væg hrossasótt getur þróast í verra tilfelli ef ekkert er að gert.

Bæði líffærafræðilegar og starfrænar ástæður eru fyrir því af hverju hross hafa svo viðkvæmt meltingarkerfi

  • Hross geta ekki kastað upp
  • Töluverð ofvirkni er í vinstra víðgirni
  • Löng garnaupphengja í smáþörmum
  • Þarmainnihald þarf að hreyfast upp á við þegar það fer inn í mjaðmagrind
  • Þrenging þarma við mjaðmasnúnig víðgirnis
  • Botnlangi er stór og getur stíflast

Ástæður hrossasóttareinkenna

  • Stífla - yfirleitt í víðgirni
  • Krampasótt - of miklar hreyfingar þarma - oftast smáþarma
  • Sjálfhverfur þarmur - fellur inn í sjálfan sig
  • Garnaflækja - oftast smáþarmar
  • Garnasnúningur - oftast víðgirni
  • Teppa á blóðflæði til þarma - oft ásamt garnaflækju/garnasnúningi
  • Þemba - of mikil gasmyndum - oftast í botnlanga eða víðgirni
  • Blóðtappi í görn - mikil omaveiki og ormarek dreyrorma

Einkenni hrossasóttar

  • Liggja flatir í lengri tíma
  • Ekki með sjálfum sér
  • Eyrðarleysi
  • Fíla grön
  • Horfa aftur fyrir sig - eftir kviðnum
  • Staðið eins og reynt sé að losa sig við þvag
  • Sparkað með afturfótum upp í kvið.
  • Svitna
  • Láta sig falla til jarðar og velta sér.

Þegar hestur greinist með hrossasótt er ýmislegt sem við verðum að hafa í huga:

  • Umhverfi hestsins
  • Hvort hann sé í stíu/bás
  • Í haga
  • Í sendnu gerði
  • Veðrabreytingar
  • Fóður
  • Hvernig fóður
  • Breytingar á fóðri
  • Breytingar á tíma sem gefið er á
  • Hegðun
  • Ropari
  • Græðgi
  • Saga
  • Hefur hrossið fengið hrossasótt áður
  • Hvenær byrjuðu einkennin
  • Breytingar á þjálfun
  • Flutningur á milli staða
  • Ormasýkingar

Meðferð

  • Taka frá fóður
  • Hafa greiðan aðgang að vatni
  • Lyfjameðferð dýralæknis
  • Verkjastillandi lyf
  • Lyf sem örva/slaka á vöðvum þarmanna
  • Gott er að rölta um með hrossasóttarsjúka hesta

Til baka