Hleð spilara!


Ágrip og slagsæri - fræði og meðferðir

Þegar talað er um slagsæri og ágrip er átt við það þegar tá eða innri hluti hófs snertir eða grípur á hófhvarf, kjúku og veldur sári á húð og öðrum vef á fæti hests. Hestar grípa oftast á sig á stökki, brokki og skeiði. Ýmis afbrigði eru til af ágripum og slagsárum og eiga þau sér mismundi ástæður og uppruna. Ágrip og slagsæri geta aldrei talist eðlileg og flokkast þau undir óeðlilegar hreyfingar fóta!

Þessar hreyfitruflanir eru flokkaðar í eftirfarandi flokka:

  • Almennt ágrip (brushing) - afturfótur fer í samstæðan framfót.
  • Ágrip í skástæðan fót (cross-firing) - kemur oftast fyrir hjá skeiðhrossum, þannig að afturfóta hófurinn innanfótar fer í hælinn innanfótar á skástæðum framfæti.
  • Olnboga ágrip (elbow hitting) - hesturinn lemur með skeifu á sama fæti í olnboga, nær undantekningarlaust eru þetta hestar með þyngingar á framfótum.
  • Hófbotns ágrip (forging) - tá afturfótar skeifu lemur í hófbotn á samstæðum framfótar hóf (t.d. samsláttur á brokki).
  • Skástætt ágrip með sviffæti (interfering) - kemur fyrir á fram og aftur fótum. Hestarnir grípa á sig með þeim fæti sem er á svifi, innanfótar á skástæðan fót sem stigið er í. Ágripin eru yfirleitt frá hófhvarfi upp á legg.
  • Ágrip á þófa/skeifuenda (overreaching) - tá afturhófs slær í samsíða framfót, oftast í hæl eða þófa. Afturfótur er fyrr á ferð en þegar hann slær í hófbotn, því fer hann í hæl/þófa en ekki í hófbotn. Þannig getur hún einnig hitt skeifuendann (hæl skeifunnar) og rifið undan skeifuna. Ástæðan er skortur á samhæfingu hraða aftur- og framhófa.
  • Afturgrip (scalping) - framhófur slær framan á afturfót. Höggið frá tá framhófs er framan á hófhvarfi eða ofar t.d kjúkubein eða upp á legg, þetta er algengast hjá brokkurum.

Hestar grípa á sig skástætt á skeiði en hliðstætt á brokki.

Ástæður ágripa geta verið af ýmsum toga og skal þar helst nefna:

  • Röng járning
  • Ofvaxnir hófar
  • Gölluð fótstaða
  • Gölluð líkamsbygging, t.d. stuttur búkur með hlutfallslega langar fætur
  • Jafnvægisleysi ungra hesta, sem hverfur oft með aukinni þjálfun og ganghæfni.
  • Þreyta
  • Hraðaágrip

Almennt gildir um meðferð við ágripum að meðferðin er háð ástæðu og tegund ágripsins.

Það eru þrjú aðalatriði við lagfæringu ágrips sem skipta mestu máli:

  • Framhófur verður að fara fyrr upp til að fá ekki högg frá afturfæti.
  • Afturfótur má ekki ná eins langt fram, svo hann nái ekki í framfót.
  • Hæl framfótarskeifu og tá afturfótarskeifu verður að stytta til að hindra að fram- og afturhófur nái saman.

Heimildir:

  • Adams’ Lahmheit bei Pferden, T.S. Stashak. 4 auflage
  • Der Huf ; H. Ruthe. 5 überarbeitete Auflage

Til baka