Hleð spilara!

Að tryggja hest

Gagnlegar upplýsingar um að tryggja hesta


Mismunandi þarfir

Tryggingaþörf hestafólks er mismunandi og viðhorf hestamanna ólík. Mikilvægur eiginleiki Hestaverndar VÍS er að bæði er hægt að setja saman mismunandi tryggingar og raða þeim saman í mismunandi hlutföllum á hvert hross.

Allir hestar ættu að hafa sjúkrakostnaðartryggingu og ábyrgðartryggingu en síðan fer það eftir þörfum hvers og eins hvaða líftryggingar hann velur og í hvaða hlutföllum. Einn og sami hesturinn getur haft fleiri en eina tegund líftrygginga allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Reiðhestur getur til dæmis verið tryggður í góðhestatryggingu fyrir markaðsvirði hans en einnig er hægt að lækka iðgjaldið með því að taka góðhestatryggingu að hluta og reiðhestatryggingu eða jafnvel takmarkaða líftryggingu að hluta. Samanlögð líftryggingarfjárhæð getur þó aldrei verið hærri en sem nemur markaðsvirði hrossins.

Sjúkrakostnaðartrygging

Með því að tryggja fyrir sjúkrakostnaði getur eigandi hests veitt honum bestu meðhöndlun sem völ er á hverju sinni. Í sjúkrakostnaðartryggingu fást bætur vegna sjúkrakostnaðar sem getur oft numið háum fjárhæðum. Algengar aðgerðir á hestum geta numið háum fjárhæðum.

Gildistaka

Tryggingin tekur gildi um leið og VÍS tekur á móti og samþykkir vátryggingarbeiðni. Tryggingin tekur ekki til sjúkdóms sem á upptök sín fyrstu 14 dagana sem hún gildir. Þetta á hins vegar ekki við um áverka af völdum slyss, tryggingin bætir strax bótaskyld tjón vegna slíks atburðar. Sérstök ákvæði eiga við um suma sjúkdóma og er nánar fjallað um þau í skilmálum vátrygginganna.

Þegar sótt er um tryggingu er nauðsynlegt að leggja fram vottorð frá dýralækni sem er ekki eldra en 30 daga ef óskað er eftir:

  • Takmarkaðri líftryggingu fyrir hærri fjárhæð en 1.000.000 kr.
  • Reiðhesta- eða kynbótahryssutryggingu fyrir hærri fjárhæð en 500.000 kr.
  • Góðhestatryggingu fyrir hærri fjárhæð en 300.000 kr.
  • Hvers konar tryggingu ef hesturinn hefur verið veikur eða slasast*

*Hafi hestur veikst eða slasast áður en vátryggingarbeiðni var útfyllt, er nauðsynlegt að tilgreina dagsetningu og eðli meiðsla. Í flestum tilvikum er óskað eftir vottorði frá dýralækni. Ef svo er verður haft samband við vátryggingartaka.

Tryggingarbeiðni

Þegar tryggingarbeiðni er lögð fram þurfa m.a. að liggja fyrir ættbókarnúmer hestisns og upplýsingar um einstaklingsmerkingu hans, svo sem örmerki eða frostmerki.

  • Ef hesturinn er ekki skráður hjá Bændasamtökum Íslands, er hér hægt að fylla út beiðni um skráningu og senda Bændasamtökunum.
  • Ef hesturinn er hvorki örmerktur né frostmerktur, þá er hægt að hafa samband við næsta dýralækni eða annan þar til bæran sem hafa leyfi til örmerkinga.