Ábyrgð félagsins vegna hvers einstaks tjóns takmarkast við þá bótafjárhæð sem tilgreind er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Verði fleiri en eitt tjónsatvik af sömu orsök teljast þau vera af völdum eins tjónsatburðar.

Ábyrgðartryggingu er hægt að kaupa eina og sér eða sem viðbót við aðrar tryggingar í Hestavernd VÍS. Ef tryggingartaki er með bændatryggingu, þá er hún oft innifalin í þeim pakka.

Eigin áhætta er 10% af tjónsatburði en þó með ákveðið lágmark og hámark sem er tilgreint í tryggingarskírteini / endurnýjunarkvittun.

Mjög alvarleg slys geta og hafa orðið í tengslum við hestamennsku og því eru forvarnir mikilvægar. Kynntu þér allt um forvarnir í hestamennsku hér.