Ef tryggingafélag tekur þátt í kostnaði við greiningu og lækningu á sjúkdómi er ljóst að ekkert verður til sparað og dýrið fær allra bestu læknisþjónustu sem völ er á.

Við teljum fullvíst að sá dýralæknir sem ekki þarf að hafa áhyggjur af fjárhag dýraeiganda leitar allra leiða til að sjúkdómsgreina og lækna það dýr sem hjá honum er.

Það gefur dýralæknum svigrúm til aukinna rannsókna og gefur dýraeigendum kost á betri og nákvæmari læknisþjónustu.

Við viljum fjölga dýraeigendum á Íslandi enda hafa fjölmargar rannsóknir sýnt og sannað að dýrahald getur haft jákvæð áhrif á heilsu mannfólksins. Við styðjum Íslendinga sem gera rannsóknir á þessu sviði.

Við höfum ráðið til okkar sérfræðinga í dýratryggingum og teljum að þeir geti ráðlagt dýraeigendum af heilindum og þekkingu um tryggingar fyrir dýrin.

Hundar og kettir eru velkomnir á skrifstofur okkar og við erum stolt að geta boðið hundaræktendum uppá ókeypis umhverfisþjálfun hjá Brynju Tomer, brynjat@vis.is, í húsakynnum okkar, Ármúla 3 í Reykjavík.