Hleð spilara!
Kaskó
Kaskótrygging er valfrjáls trygging sem bætir tjón á ökutæki þegar eigandi eða ökumaður á sjálfur sök á óhappinu, ef ökutækið verður fyrir utaðkomandi tjóni, eða ef ökutækinu er stolið.
Kaskótryggingin hefur víðtækt bótasvið og er fáanleg fyrir allar gerðir ökutækja. Allir bifreiðaeigendur ættu að íhuga að taka kaskótryggingu þar sem tjón á ökutækjum geta verið mjög kostnaðarsöm, hvort sem þau eru lítil eða stór. Eigin áhætta er valin af tryggingartaka og kemur fram á tryggingarskírteini.
Kaskótryggingin gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss í allt að 92 daga frá brottfarardegi. Standi ferðalag lengur en í 92 daga er hægt að kaupa framlengdan gildistíma.
Kaskótryggingin er oftast sett sem skilyrði af hálfu lánveitanda sé ökutækið fjármagnað af banka eða annarri lánastofnun.
Stærsta hlutfall tjónagreiðslna VÍS er vegna umferðatjóna og slysa á fólki. Yfir 90% umferðaslysa má rekja til ökumanna og því er gríðarlega mikilvægt að hver og einn hugi vel að akstri sínum með það að markmiði að forðast umferðarslys. Sjá má allt um forvarnir umferðarinnar hér.
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Áreksturs þess og annars farartækis, s.s. bifreiðar eða bifhjóls.
- Áakstur.
- Veltu og hraps.
- Útafaksturs.
- Grjóthruns, skriðufalls, snjóflóðs úr fjallshlíð, aur- eða vatnsflóðs.
- Athygli er vakin á því að þetta á ekki við ef sandur, möl, aska, vikur, eða önnur laus jarðefni fjúka á ökutækið.
- Hvað er átt við með óveðri?
- Með óveðri er átt við þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu samkvæmt vottorði Veðurstofu Íslands.
- Hvað ef ekki liggja fyrir viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað, þegar tjónið varð?
- Þá skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu, hvort almennt eignatjón hefur orðið á svæðinu af völdum veðurs er tjónsatburðurinn átti sér stað.
- Flutnings þess um landveg á eða af flutningstæki eða á skipi milli hafna.
- Athygli er vakin á því að skemmdir sem verða þegar það er flutt á milli hafna, bætast þó ekki nema um árstryggingu sé að ræða.
- Þess að pallur vörubifreiðar fer af eða á hliðina þegar honum er lyft, hvort sem ökutækið sjálft veltur eða ekki.
- Skemmdarverka sem unnin eru af ásettu ráði af öðrum en vátryggðum.
- Þjófnað á hljómtækjum hins vátryggða ökutækis.
- Athygli er vakin á því að það á þó við að hámarki þá fjárhæð sem tiltekin er í vátryggingar-skírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins.
- Athygli er vakin á því að þetta á þó ekki við úrtöku og ísetningu.
- Einnig telst það ekki rúðubrot þótt flísist eða kvarnist úr rúðu eða hún rispast.
- Björgunar- eða flutningskostnað til næsta viðgerðarverkstæðis sem félagið fellst á ef ökutæki verður óökufært vegna bótaskylds tjóns á Íslandi.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir er aðeins varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeymi og gler, sbr. þó skilmála.
- Þjófnað á einstökum hlutum ökutækisins, sbr. þó gr. skilmála.
- Skemmdir sem hljótast af því að laust grjót hrekkur upp undir ökutækið í akstri.
- Skemmdir sem hljótast af því að ökutækið tekur niðri á ójöfnum, svo sem hryggjum eftir veghefla, jarðföstu og lausu grjóti.
- Skemmdir á hvers konar aukaútbúnaði ökutækisins, t.d. tengivögnum, farsímum, GPS-tækjum, tal-stöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.
- Skemmdir sem verða á ökutækinu vegna þátttöku í aksturskeppni eða æfingu fyrir slíka keppni.
- Skemmdir á ökutækinu vegna dýra.
- Skemmdir af völdum sjóbleytu.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
