Hálfkaskó
Hálfkaskótrygging hefur þrengra bótasvið en Kaskótrygging og er sérstaklega kjörin fyrir ökumenn sem aka lítið í þéttbýlum.
Kaskótrygging er valfrjáls trygging sem bætir tjón á ökutækinu þegar eigandi eða ökumaður á sjálfur sök á óhappinu.
Bótasviðið tekur mið af algengustu orsökum tjóna utan þéttbýlis s.s. veltu, hrap þjófnaðar eða eldsvoða.ef ökutækið verður fyrir utanaðkomandi tjóni, eða ef ökutækinu er stolið.
Eigin áhætta er valin af tryggingartaka og kemur fram á tryggingarskírteini.
Tryggingin hentar einkar þeim sem aka lítið í þéttbýli þar sem bótasvið Hálfkaskó er þrengra en í Kaskó tryggingu.
Stærsta hlutfall tjónagreiðslna VÍS er vegna umferðatjóna og slysa á fólki. Yfir 90% umferðaslysa má rekja til ökumanna og því er gríðarlega mikilvægt að hver og einn hugi vel að akstri sínum með það að markmiði að forðast umferðarslys. Sjá má allt um forvarnir umferðarinnar hér.
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Veltu og hraps.
- Athygli er vakin á því að aðeins 50% tjóns fæst bæst.
- Eldsvoða, eldingar eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Auk skemmda á ökutækinu nær vátryggingin til skemmda sem samtímis verða á varahlutum og þeim fylgihlutum ökutækisins sem teljast mega tilheyra eðlilegum útbúnaði þess þegar tjónið varð, enda séu hlutir þessir þá í ökutækinu.
- Athygli er vakin á því að það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Þjófnaðar eða ef tilraun er gerð til þjófnaðar á því.
- Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins.
- Athygli er vakin á því að þetta á þó ekki við úrtöku og ísetningu.
- Einnig telst það ekki rúðubrot þótt flísist eða kvarnist úr rúðu eða hún rispast.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir vegna veltu eða hraps séu þær afleiðing áreksturs eða áaksturs. Skemmdir er stafa af hvers konar náttúruhamförum, sbr.skilmála.
- Athygli er vakin á því að þó bætast skemmdir er verða ef ökutækið fýkur út af akbraut og veltur.
-
Skemmdir vegna veltu eða hraps og aðeins varða hjól og hjólbarða.
- Skemmdir af eldsvoða af völdum áreksturs eða áaksturs.
-
Skemmdir á hreyfli vegna sprenginga í strokkum.
-
Þjófnað á einstökum hlutum ökutækisins.
-
Skemmdir á hvers konar aukaútbúnaði ökutækisins, t.d. tengivögnum, farsímum, GPS-tækjum, tal-stöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.
-
Skemmdir sem verða á ökutækinu vegna þátttöku í aksturskeppni eða æfingu fyrir slíka keppni.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
