Hleð spilara!

Algengar spurningar

Er dýrara fyrir unga ökumenn að tryggja bílana sína? 
Nei, ekkert álag er á unga ökumenn.

Hvað missi ég mikinn bónus ef ég veld tjóni? 
Ef þú nýtur verndar úr fjölskyldutryggingu hjá VÍS og lendir aðeins í einu tjóni á tryggingatímabilinu, þá fellur þú ekki í bónus. Ef þú hinsvegar nýtur ekki verndar úr fjölskyldutryggingu hjá VÍS þá fellur þú um einn bónusflokk fyrir hvert tjón.

Byrja allir með hámarksbónus? 
Já, allir byrja með 75% bónus í ábyrgðartryggingu og 60% í Al-kaskó tryggingu.

Hvernig er iðgjaldið ákveðið? 
Ýmsir þættir hafa áhrif á iðgjaldið. En það er meðal annars ákvarðað af búsetu, tegund og aldri ökutækis og þeim afsláttum sem viðskiptavinur nýtur hjá VÍS.

Til baka