Hleð spilara!
Brunatrygging ökutækis
Brunatrygging ökutækis tryggir ökutækið eingöngu gegn eldsvoða.
Algengt er að ökutæki á borð við fornbíla og mótorhjól séu geymd innandyra yfir vetrartímann. Brunatrygging ökutækja er tilvalin fyrir slík ökutæki þar sem ökutækið er tryggt fyrir bruna kvikni í því innan dyra eða utan.
Þegar ökutæki eru brunatryggð greiðist hluti iðgjaldsins til Viðlagatryggingar Íslands. Sú stofnun greiðir út bætur vegna náttúruhamfara á borð við eldgos, jarðskjálfta, skriðuföll auk snjó- og vatnsflóða. Lesa má nánar um Viðlagatryggingu Íslands hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
