Hleð spilara!

Bílrúðutrygging

Bílrúðutrygging er valkvæð trygging sem er seld með lögboðinni ábyrgðartryggingu ökutækis.


Tryggingin bætir brot á fram-, aftur-, og hliðarrúðum ökutækisins. Einnig er greiddur ísetningarkostnaður við rúðuskiptin. Ef rúða rispast eða ef flísast úr henni telst það ekki sem brot.

Tryggingartaki greiðir 15% eigin áhættu af heildarkostnaði ef skipta þarf um rúðu. Ef gert er við rúðuna er það tryggingartaka að kostnaðarlausu því ekki er eigin áhætta á bílrúðuviðgerðum.
Ekki þarf að tilkynna bílrúðubrot til VÍS sé leitað beint á viðurkennt bílrúðuverkstæði sem er í samstarfi við VÍS. Tryggingartaki greiðir eigin áhættuna beint til verkstæðisins. Nánari upplýsingar um verkstæði í samstarfi við VÍS má finna hér.

Bílrúðuviðgerðir:
Ef skemmdin er minni en 100 kr. peningur eru góðar líkur á að hægt sé að gera við hana. Ekki er heimilt að gera við skemmd sem er í sjónlínu ökumanns, heldur skal skipt um rúðuna í slíkum tilfellum. Best er að fara með bílinn á verkstæði sem býður uppá bílrúðuviðgerð eins fljótt og kostur er þar sem sérfræðingar meta hvort hægt sé að gera við skemmdina.
Öruggast er að setja límmiða yfir skemmdina við fyrsta tækifæri til að verjast óhreinindum og raka. Þannig eru auknar líkur á að rúðuviðgerðin heppnist. Gott er að eiga slíkan límmiða í hanskahólfinu, en hann er hægt að nálgast á næstu þjónustuskrifstofu VÍS.

Framrúðuviðgerð er varanlegur kostur þar sem  loft er dregið út úr skemmdinni og hún fyllt með herðanlegu, og sjónrænt svipuðu efni. Aðgerðin bindur glerið saman og kemur í veg fyrir að skemmdin breiði úr sér.
Í framrúðuviðgerð þarf ekki að greiða eigin áhættu og því er aðgerðin kostnaðarlaus fyrir tryggingartaka.

Stærsta hlutfall tjónagreiðslna VÍS er vegna umferðatjóna og slysa á fólki. Yfir 90% umferðaslysa má rekja til ökumanna og því er gríðarlega mikilvægt að hver og einn hugi vel að akstri sínum með það að markmiði að forðast umferðarslys. Sjá má allt um forvarnir umferðarinnar hér.

Vátryggingin bætir:

  • Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins. Það telst ekki brot þótt flísist úr rúðu eða hún rispist.
  • Ísetningarkostnað.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Rúðu sem brotnar við úrtöku eða ísetningu.
  • Kostnað við hreinsun glerbrota.
  • Tjón vegna afnotamissis ökutækisins þegar rúða brotnar.
  • Tjón á topplúgu.
  • Filmur í bílrúðum.