Bifhjólatrygging
Öllum bifhjólaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu bifhjóls og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Kaskótrygging hentar öllum eigendum bifhjóla, og bætir hún margs konar tjón á bifhjólinu.
Ábyrgðartrygging bifhjóls
- Lögboðin ábyrgðartrygging ásamt slysatryggingu ökumanns og eiganda
Kaskó trygging
- Valfrjáls trygging sem bætir skemmdir á hjólinu sjálfu
Hlífðarbúnaðartrygging
- Bætir tjón á hlífðarbúnaðinum sjálfum í tengslum við notkun bifhjólsins
Breytingar hafa verið gerðar á flokkun bifhjóla hjá VÍS og eru flokkunin nú eftirfarandi:
- Klifurhjól (trial)
- Krossarar (motocross)
- Torfæruhjól (enduro)
- Vegahjól (funduro)
- Ferðahjól (tourer)
- Götuhjól (roadster)
- Sporthjól (racer)
- Hippi (custom/cruiser/chopper)
- Fornhjól (old timer)
- Vespa (stærri en 50cc)
Sjá má allt um forvarnir bifhjóla hér.
Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja er samsett úr ábyrgðartryggingu bifhjóls, og slysatryggingu ökumanns og eiganda bifhjólsins.
Öll skráningarskyld ökutæki eiga að vera tryggð með lögboðinni ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Ábyrgðartrygging bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun bifhjólsins. Tryggingin bætir ekki skemmdir á bifhjólinu sem veldur tjóninu.
Slysatrygging ökumanns og eiganda gildir fyrir ökumann og eiganda ef hann er farþegi á eigin bifhjóli. Ef ökumaður er valdur að slysi fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Eins ef eigandi bifhjólsins er farþegi á sínu eigin bifhjóli fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Aðrir farþegar en eigandi eru hins vegar vátryggðir í ábyrgðartryggingu bifhjólsins.
Ábyrgðartrygging bifhjólsins sem og slysatrygging ökumanns og eiganda gilda ekki í aksturskeppni nema keypt sé sérstök keppnistrygging.
Kaskótrygging bifhjóls er valfrjáls trygging sem bætir tjón á bifhjóli þegar eigandi eða ökumaður á sjálfur sök á óhappinu, ef bifhjólið verður fyrir utaðkomandi tjóni, eða ef bifhjólinu er stolið.
Kaskótryggingin hefur víðtækt bótasvið og er fáanleg fyrir allar gerðir bifhjóla. Allir bifhjólaeigendur ættu að íhuga að taka kaskótryggingu þar sem tjón á bifhjólinu getur verið mjög kostnaðarsamt, hvort sem það er lítið eða stórt. Eigin áhætta er föst fjárhæð og kemur fram á tryggingarskírteini.
Kaskótryggingin gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss í allt að 92 daga frá brottfarardegi. Standi ferðalag lengur en í 92 daga er hægt að kaupa framlengdan gildistíma.
Kaskótryggingin er oftast sett sem skilyrði af hálfu lánveitanda sé ökutækið fjármagnað af banka eða annarri lánastofnun.
Tryggingin bætir tjón á hlífðarbúnaði vegna óhappa í tengslum við notkun bifhjólsins, þjófnaðar v/ innbrots, vatns- og brunatjóna. Verði vátryggingartaki eða fjölskylda hans með sama lögheimili á Íslandi fyrir óhappi á bifhjóli bætir hlífðarbúnaðartrygging tjón á hlífðarbúnaði. Engu máli skiptir í því tilliti hvort líkamstjón hafi átt sér stað eða ekki.
Hlífðarbúnaðartrygging bætir ekki tjón sem verður í tengslum við notkun á klifurhjóli, krossara og torfæruhjóli, en bætir þó tjón af völdum þjófnaðar v/ innbrots, auk vatns- og brunatjóna. Iðgjald er með helmings afslætti fyrir þessa flokka.
Hámarks vátryggingarfjárhæð tryggingarinnar er 450.000 kr.Tryggingin gildir ekki í aksturskeppni.
Eins og margir bifhjólamenn þekkja þá er hlífðarbúnaður ekki alltaf tryggður þegar bifhjólaslys verður. Hlífðarbúnaður er bættur samkvæmt eftirfarandi:
• Ábyrgðartrygging bifhjóls bætir ávallt tjón á hlífðarbúnaði fyrir farþega hjólsins, sé hann ekki eigandi.
• Slysatrygging ökumanns og eiganda bætir tjón á hlífðarbúnaði fyrir ökumann og eiganda ef líkamstjón á sér stað.
• Fjölskyldutryggingar VÍS bæta tjón á hlífðarbúnaði ef þjófnaður v/ innbrots, vatns- eða brunatjón eiga sér stað á heimili vátryggðs, en aðeins með 2% af vátryggingarfjárhæð. Algengasta hámarksupphæð bóta er 120.000 - 200.000 kr. fyrir auka- og varahluti sem tilheyra vélknúnu ökutæki, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagni eða skemmtibát. Að öðru leyti fellur hlífðarbúnaður ekki undir aðrar fjölskyldu- eða heimilistryggingar.
Hvenær er búnaðurinn ótryggður með öðrum tryggingum en hlífðarbúnaðartryggingu:
• Ef ökumaður eða eigandi lendir í óhappi sem ekki leiðir til líkamstjóns.
Samkvæmt skilmálum VÍS eru aksturskeppnir undanskildar í bifhjólatryggingu.
Í aksturskeppnum á bifhjólum, s.s. mótorcross og kvartmílu eru gerðar undantekningar vegna ábyrgðartryggingar bifhjóls og slysatryggingu ökumanns og eiganda, en þá þarf viðskiptavinur að óska eftir svokallaðri keppnistryggingu. Í mótorcross keppni þarf að greiða fyrir keppnistrygginguna og er bæði hægt að kaupa staðfestingu fyrir sumarið í heild og fyrir stakar keppnir.
Keppnistrygging er keypt fyrir ákveðið hjól og gildir eingöngu fyrir ökumann með fullgild réttindi. Þegar börn taka þátt í aksturskeppnum eru þau tryggð ef akstur fer fram á svæðum sem eru heimiluð samkvæmt reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppni. Þar kemur fram að bætur eru greiddar vegna barna frá 6 ára aldri, þó háð því að hjól sé af ákveðinni vélarstærð, samþykki foreldris og að akstur fari fram á þar til gerðu svæði þar sem lögregla hefur veitt heimild fyrir akstri barna.
Ekki eru gerðar undantekningar um að kaskótrygging né hlífðarbúnaðartrygging gildi í aksturskeppnum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
