Skemmtibátum hefur fjölgað mjög undanfarin ár og aðstaða og aðgengi að höfnum batnað til muna. Tjón á skemmtibátum geta orðið afar dýrkeypt og því er mikilvægt að vera tryggður gegn slíku. Skemmtibátatrygging VÍS gildir við strendur Íslands og tekur á skemmdum vegna bruna, strands, brotsjós, innbrots, náttúruhamfara og sökkvi báturinn.
Sé hann á landi gildir tryggingin gegn bruna, foki og skemmdarverkum. Jafnframt er möguleiki á að taka altjónstryggingu á skemmtibátinn þar sem ábyrgðartrygging er innifalinn.

Iðgjald skemmtibátatrygging er árstrygging og reiknast iðgjaldið sem 2.35% af verðmæti bátsins.  Hægt er að lækka iðgjaldið með því að auka eigin áhættu. Hvert tjón ber 10% eigin áhættu en þó með ákveðnu lágmarki og hámarki sem tilgreint er í vátryggingar- eða endurnýjunarskírteini.

Sé óskað eftir altjónstryggingu reiknast iðgjaldið 1,28% af verðmæti bátsins.

Skila þarf inn beiðni til að taka skemmtibátatryggingu.