Hleð spilara!

Umferðaslys

Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa lent í umferðaslysi.


Skýrsla um tildrög slyssins og afleiðingar þess

Þegar um líkamstjón er að ræða í umferðarslysum á að hringja í 112 og gefa skýrslu um tildrög slyssins og afleiðingar þess. Skýrslan um umferðarslysið er síðan send til hlutaðeigandi vátryggingafélaga. Á grundvelli lögregluskýrslna/tjónstilkynninga skráir félagið tjón á ökutæki og líkamstjón ef það er tekið fram.

Ef aðila er getið í lögregluskýrslu eða í tjónstilkynningu en ekki er tekið fram að það hafi slasast en áverkar eða meiðsl koma síðar í ljós er nauðsynlegt fyrir tjónþola að fylla út tjónstilkynningu fyrir umferðarslys.

Ef aðila er ekki getið í lögregluskýrslu eða í tjónstilkynningu en það hefur engu að síður lent í slysinu og kennir sér meins af því er nauðsynlegt að fylla út tjónstilkynningu fyrir umferðarslys.

Við hvaða tryggingafélag ber að tala?

Þegar ökutæki lenda í árekstri eiga farþegar og ökumaður þess ökutækis sem telst vera í rétti að snúa sér til vátryggingafélags þess ökutækis, sem telst vera í órétti. Farþegar og ökumaður í því ökutæki, sem telst í órétti eiga að snúa sér til þess vátryggingafélags sem vátryggir viðkomandi ökutæki.

Ökumaður og farþegar, sem lenda í útafakstri eða bílveltu eiga að snúa sér til vátryggingafélags ökutækisins.

Gangandi vegfarendur og hjólreiðamenn...

...eiga að snúa sér til vátryggingafélags þess ökutækis, sem ekur á þá.


Mikilvægt að vanda skýrslugerð

Þegar um slys er að ræða er mjög mikilvægt að vanda sérstaklega til skýrslugerðar. Svara ber af kostgæfni öllum þeim spurningum sem á eyðublaðinu eru. Nákvæm tjónstilkynning leiðir til þess að mál eru afgreidd með skjótari hætti en ella. Það er hinn vátryggði sem fyllir út tjónstilkynningu en það þarf ekki endilega að vera vátryggingartaki. Ef barn vátryggingartaka slasast og fellur undir vátryggingu hans er nægilegt að vátryggingartaki sendi inn tilkynningu.

Hægt er að senda undirritaða tjónstilkynningu í pósti beint til tjónadeildar VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík, en einnig er hægt að skila henni inn á næstu þjónustuskrifstofu félagsins.

Ákvörðun um bótaskyldu

Ákvörðun um bótaskyldu er tekin þegar lögregluskýrsla eða tjónstilkynning ökutækis hefur borist félaginu. Ef félagið fellst á bótaskyldu þarf tjónþoli að fylla út tjónstilkynningu fyrir umferðaslys og senda til félagsins. Ef um umferðarslys í vinnutíma eða á leið í eða úr vinnu er um að ræða þarf tjónþoli að tilkynna slysið til Sjúkratrygginga Íslands. Ef um umferðaslys í frítíma er að ræða er beinn útlagður kostnaður vegna slyssins að mestu greiddur. Mikilvægt er því fyrir tjónþola að halda utan um frumrit reikninga og kvittana vegna slíks kostnaðar. Hægt er að senda frumrit reikninga og kvittanir til félagsins ásamt tjónstilkynningu um umferðarslys eða skila þeim á næstu skrifstofu félagsins.

Bætur fyrir líkamstjón í umferðarslysum

Skaðabótalög nr. 50/1993 gilda m.a. um bætur fyrir líkamstjón í umferðarslysum, þ.á.m. bætur fyrir tímabundið atvinnutjón og varanlega örorku. Sú meginregla gildir í skaðabótarétti að tjónþola ber að sanna raunverulegt tjón sitt. Þar sem bótauppgjör líkamstjóns getur verið lögfræðilega flókið er tjónþola ráðlagt að leita sér aðstoðar hjá lögmanni. Tjónþoli þarf að gefa lögmanni sínum formlegt umboð til þess að fara með mál sitt.

Greiðsla bóta fyrir tímabundið atvinnutjón

Áður en hægt er að taka afstöðu til greiðslu bóta fyrir tímabundið atvinnutjón verður félagið að hafa eftirfarandi gögn undir höndum en félagið metur þau gögn hverju sinni:

  • Skýrsla um umferðaróhappið, þar sem fullnægjandi upplýsingar sýna að um sé að ræða bótaskylt tjón.
  • Staðfesting læknis á því að viðkomandi sé óvinnufær vegna slyssins.
  • Afrit skattframtala, staðfest af skattstjóra, er sýni launatekjur á síðustu þremur almanaksárum fyrir slys og yfirlit úr staðgreiðsluskrá fyrir núverandi tekjuár.
  • Launaseðlar er sýna laun í hverjum mánuði síðustu 3 mánuði fyrir slys.
  • Útfyllt eyðublað félagsins, þar sem vinnuveitandi þess slasaða veitir umbeðnar upplýsingar.
  • Tjónstilkynning vegna umferðarslyss á eyðublaði félagsins undirrituð af tjónþola.
  • Tjónið þarf að tilkynna Tryggingastofnun, en þar fást greiddir dagpeningar, sem koma til lækkunar á tekjutjóni.

Ef um er að ræða einstakling með sjálfstæðan atvinnurekstur er ekki nauðsynlegt að koma launaseðlum eða staðfestingu vinnuveitanda til félagsins. Þess í stað þarf félagið að fá stimplaða kvittun frá Skattstjóra um skil á staðgreiðslu skatta síðustu 12 mánuði fyrir slys og rekstrarreikninga síðustu ára fyrir slys.

Bætur fyrir tímabundið atvinnutjón eru skattskyldar og er félaginu skylt að taka staðgreiðslu af þeim greiðslum, sem það innir af hendi. Ef bótaþegi vill njóta persónuafsláttar, verður hann að leggja fram skattkort sitt til félagsins.

Hverju sinni skal framvísa nýju læknisvottorði, sem staðfestir óvinnufærni á útgáfudegi þess.