Innanlands
Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem þurfa að nýta sér Slysa- eða sjúkdómatryggingu innanlands.
Ef slys verður eða sjúkdóms verður vart skal fyrst leita til læknis og svo tilkynna VÍS formlega um málið. Hægt er að tilkynna slys eða veikindi á aðalskrifstofu félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík eða á öðrum þjónustuskrifstofum félagsins vítt og breitt um landið.
Hér er hægt að nálgast tjónstilkynningu til útprentunar eða að fá þær sendar heim til útfyllingar. Frekari upplýsingar er hægt að fá í þjónustuveri félagsins, í síma 560-5000, alla virka daga frá 08:00 - 19:00, eða með því að senda félaginu tölvupóst á upplysingar@vis.is.
Mikilvægt að vanda skýrslugerð
Þegar um slys er að ræða er mjög mikilvægt að vanda sérstaklega til skýrslugerðar. Svara ber af kostgæfni öllum þeim spurningum sem á eyðublaðinu eru. Nákvæm tjónstilkynning leiðir til þess að mál eru afgreidd með skjótari hætti en ella. Það er hinn vátryggði sem fyllir út tjónstilkynningu en það þarf ekki endilega að vera vátryggingartaki. Ef barn vátryggingartaka slasast og fellur undir vátryggingu hans er nægilegt að vátryggingartaki sendi inn tilkynningu.
Hægt er að senda undirritaða tjónstilkynningu í pósti beint til tjónadeildar VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík, en einnig er hægt að skila henni inn á næstu þjónustuskrifstofu félagsins.
Tímabundin óvinnufærni
Tímabundin óvinnufærni er metin samkvæmt rökstuddum læknisvottorðum sem tjónþoli aflar og lætur félaginu í té. Þegar félagið hefur fengið nægileg gögn um slys eða veikindi tekur það ákvörðun um hvort að það falli undir vátryggingarskilmála. Ef slys eða veikindi eru talin bótaskyld eru greiddir dagpeningar inn á bankareikning tjónþola í samræmi við læknisvottorð og vátryggingarskilmála.
Dagpeningar
Dagpeningar úr slysatryggingum eru samkvæmt lögum skattskyldir. Greiðsla þeirra er einnig staðgreiðsluskyld sem merkir að félagið er skylt að taka staðgreiðslu af greiddum dagpeningum og skila til Tollstjórans í Reykjavík.
Dagpeningar greiddir að biðtíma liðnum
Dagpeningar eru ekki greiddir fyrr en biðtími samkvæmt vátryggingarskírteini og vátryggingarskilmálum er liðinn. Biðtími er nokkurs konar eigin áhætta hins vátryggða. Biðtími getur verið mismunandi eftir vátryggingum. Í F+ fjölskyldutryggingunni er sex vikna fastur biðtími (8 vikur í F plús 1) en í almennri slysatryggingu er val um biðtíma og fer iðgjaldið lækkandi eftir því sem biðtími er lengri.
Bótatími
Bótatími er það tímabil sem vátrygging kveður á um að greiða skuli dagpeninga. Í almennri slysatryggingu er val um lengd bótatíma og hækkar iðgjaldið eftir því sem bótatími lengist. Í F+ fjölskyldutryggingunni er hámarksbótatími fyrirfram ákveðinn 44 vikur.
Örorkumat
Ef slys eða veikindi hafa varanlegar afleiðingar í för með sér fer fram örorkumat. Varanleg örorka er að jafnaði ekki metin fyrr en a.m.k. ári eftir slys. Félagið og tjónþoli koma sér saman um lækni sem framkvæmir örorkumat. Bætur fyrir varanlega örorku eru ekki skattskyldar en samt framtalsskyldar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
