Hleð spilara!

Stakur

Skattlagning bóta - vegna sjúkdóma, slysa eða eignatjóna

Samkvæmt 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt

teljast skaðabætur til launa og vátryggingafé vegna sjúkdóma, slysa, atvinnutaps eða launamissis og hvers konar aðrar skaðabætur og vátryggingabætur. Þrátt fyrir þetta telst ekki til tekna líftryggingarfé, bætur úr sjúkdómatryggingum, dánarbætur, miskabætur og bætur fyrir varanlega örorku, enda séu þessar bætur ákveðnar í einu lagi til greiðslu. Ekki teljast heldur til tekna skaðabætur og vátryggingabætur vegna tjóns á eignum sem ekki eru notaðar í atvinnurekstri, með þeirri undantekningu þó að bætur fyrir altjón telst söluverð eigna og skattleggst samkvæmt því.

Tvenns konar skattlagning bóta vegna sjúkdóma og slysa

1. Bætur sem eru skattskyldar og staðgreiðsluskyldar:

a. Bætur fyrir tímabundið atvinnutjón sem greiddar eru úr ábyrgðartryggingum og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
b.
Dagpeningar úr sjúkra- og slysatryggingum.
c. Makabætur og barnalífeyrir úr slysatryggingu sjómanna.
VÍS ber skylda til að draga staðgreiðsluskatt frá þessum bótum og skila til Tollstjóra. Til að geta nýtt persónuafsláttinn verður að skila skattkorti til félagsins.

2. Bætur sem ekki eru skattskyldar en samt framtalsskyldar:

a. Bætur fyrir varanlega örorku úr ábyrgðartryggingum og sjúkra- og slysatryggingum.
b. Bætur fyrir varanlegan miska.
c. Þjáningarbætur.
d. Bætur fyrir missi framfæranda.
e. Dánarbætur.
f. Líftryggingarbætur.
g. Bætur úr sjúkdómatryggingum

Skattlagning bóta fyrir eignatjón

Bætur vegna tjóns á eignum einstaklinga eru almennt ekki skattskyldar. Þó eru bætur vegna brunatjóns á húsi sem ekki er endurbyggt skattlagðar eins og um sölu hússins væri að ræða.

Til baka