Stakur
Almennt um tjón og vátryggingar
Hvað er tjón?
Tjón eru samkvæmt skaðabótarétti skerðing eða eyðilegging hagsmuna eða gæða, beinna (fjárhagslegra) verðmæta eða óbeinna (ófjárhagslegra). Tjón gera ekki boð á undan sér enda er hraði samfélagsins slíkur að erfitt er að koma í veg fyrir öll tjón. Með auknum hraða og þróun samfélagsins verður áhættan meiri. Fleiri tegundir vátrygginga hafa í kjölfar þessa litið dagsins ljós og er vátryggingaflóran orðin mikil og flókin.
Hvað er vátrygging?
Vátryggingar koma ekki í veg fyrir slys. Þær eru þó hagstæðar að því leyti að þær bæta eða takmarka tjón sem hefur orðið. Vátryggingar geta t.d. komið í veg fyrir að einstaklingur verði fyrir verulegu tekjutapi vegna slyss sem hann lendir í, að hann verði fyrir eignatjóni vegna bruna eða þjófnaðar og að einstaklingur verði gjaldþrota vegna skaðabótaábyrgðar sem lendir á honum við tjón. Einnig geta vátryggingar komið í veg fyrir að tjónþoli fái ekki bætur vegna þess að tjónvaldur er ekki greiðslufær. Markmið slysatrygginga er t.d. að koma í veg fyrir alvarlega röskun á stöðu og efnahag hins vátryggða, ef hann lendir í slysi eða verður valdur að slysi sem hefur í för með sér skaðabótaábyrgð. Vátryggingar eiga samkvæmt þessu að skapa fjárhagslegt öryggi fyrir vátryggingartaka (neytanda) og þar með þjóðfélagið í heild.
Meginmarkmið vátrygginga er að dreifa áhættu á ófyrirsjáanlegu fjárhagslegu tjóni vátryggingartaka vegna atvika sem sérstaklega eru tilgreind í vátryggingarsamningi. Einstaklingar og fyrirtæki leita til vátryggingafélags til að vátryggja hagmuni sína fyrir óvæntu tjóni sem gæti haft verulegar afleiðingar í för með sér og greiða sérstakt iðgjald fyrir. Vátryggingafélag reiknar út hættuna á því að tiltekið tjón verði út frá tölfræðilegum staðreyndum, t.d. slysatíðni og bótagreiðslum vegna tjóna og ákveður meðal annars iðgjöld vátrygginga með hliðsjón af niðurstöðum þessara útreikninga. Vátryggingafélag endurtryggir sig hjá öðrum og stærri vátryggingafélögum, svokölluðum endurtryggjendum, og þannig dreifist áhættan á fjárhagstjóni á marga aðila. Margir aðilar saman eru betur í stakk búnir að takast á við stærri tjón en einn aðili sem tekur á sig alla áhættuna.
Hvað er vátryggingarsamningur?
Vátryggingarsamningur er samningur á milli vátryggingartaka og vátryggjanda, þar sem vátryggjandi tekur að sér að bæta vátryggingartaka ófyrirsjáanlegt tjón sem verða kann á hagsmunum hans gegn því að vátryggingartaki greiði ákveðna þóknun eða iðgjald.
Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) leggur mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða þjónustu ef þeir lenda í tjóni.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
