Ef vátryggður verður fyrir því að vera rænd(ur) á ferðalagi erlendis, eða frá honum er stolið farangri, þarf að gera ráðstafanir til að sýna fram á hvert tjónið er. Þá þarf að tilkynna atburðinn til lögreglu eða annarra yfirvalda og gefa skýrslu. Ef um skipulagða ferð er að ræða á vegum ferðaskrifstofu og fararstjóra nýtur við, skal leita aðstoðar hans. Nauðsynlegt er fyrir vátryggðan að fá afrit af skýrslum sem teknar eru vegna atviksins, t.d. lögregluskýrslu, sem framvísa skal á skrifstofu VÍS þegar komið er heim aftur.

Ef farangur skemmist eða týnist meðan hann er í vörslu flutningsaðila, s.s. flugfélags, er tjónþola skylt að tilkynna skemmdirnar / tapið strax við lendingu eða innan 7 daga til viðkomandi flugfélags á þar til gerðum eyðublöðum (P.I.R – skýrslu). Tjónþoli skal fá í hendur afrit sem hann síðar skilar til vátryggingafélagsins.

Senda skal félaginu tilkynningu um tjónið eins fljótt og hægt er með góðu móti, t.d. strax við heimkomu.