Hleð spilara!
Dýratjón
Viðbrögð v.dýratjóns
- Vátryggingartaki skal hafa samband við dýralækni eins fljótt og auðið er, ef dýrið sýnir merki um lasleika , þyngdartap eða ef slys verður
- Ef ekið er á dýrið þarf að skila inn upplýsingum um hvaða ökutæki var að ræða , ef það er ekki vitað skal tilkynna lögreglu um að ekið hafi verið á dýrið og skila lögregluskýrslu til VÍS
- ef hundur/hestur týnist skal auglýsa í fjölmiðlum og standa fyrir leit að dýrinu. Skila skal inn til VÍS afriti af auglýsingum.
- Hafa ber í huga að samþykki VÍS þarf ef gerð er krufning á dýri, eða ef hræi er fargað.
Halda skal utan um allar vitjanir og heimsóknir til dýralæknis.
Aðrar upplýsingar
- Skila skal inn vottorði frá dýralækni þar sem fram kemur um hvaða dýr er að ræða með nafni og örmerki/IS-númeri auk þess þurfa að koma upplýsingar um hvað gerðist/um hvaða slys eða sjúkdóm er að ræða, meðhöndlun og batahorfur dýrsins.
- Á hverjum reikningi má einungis vera kostnaður fyrir eitt dýr og þá hvaða dýrs og kostnaður vegna eins tjónsatburðar.
ATH: einungis er greitt samkvæmt frumriti reikninga.
Lækniskostnaður er skilgreindur sem greiðslur til dýralæknis, dýralæknastofu eða dýraspítala á Íslandi vegna skoðunar eða meðferðar vegna sjúkdóms eða slyss. Ennfremur lyfja sem sömu aðilar afhenda eða ávísa vegna sjúkdóma eða slysa.
Með orðinu slys er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð, eða verknað dýrsins sjálfs sem veldur meiðslum á dýrinu og gerist án vilja þess sem annast það.
Með orðinu sjúkdómur er átt við að dýrið veikist af þekktum og skilgreindum sjúkdómi.
Ekki er greiddur kostnaður vegna lyfseðla, reikningsgerðar, vottorða eða sjúkraskýrslugerðar.
Ferða-og flutningskostnaður vegna meðverðar og skoðunar telst ekki vera lækniskostnaður.
Fóður, fæðubótarefni, heilsu-og hreinlætisvörur og aðrar sambærilegar vörur teljast ekki vera lækniskostnaður.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
