Slysatölur
Góð slysatölfræði er mikilvæg til að hægt sé að fylgjast með þróun mála og byggja forvarnir á.
Árið 2011 létust 12 einstaklingar í umferðarslysum hér á landi. Oft á tíðum er erfitt að horfa á tölfræði eins árs vegna smæðar Íslands. Ef skoðuð eru nokkur ár aftur í tímann hafa 23 látist að meðaltali á ári hverju í umferðarslysum. Algengustu orsakir banaslysa eru beltaleysi, ölvunarakstur, hraðakstur, þreyta, veikindi og útafakstur. Í skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa má sjá nánari umfjöllun um orsakir banaslysa árið 2010.
Samkvæmt slysatölum í umferðinni frá Umferðarstofu, sem byggja á lögregluskýrslum, slösuðust eða létust tæplega 1269 einstaklingar í umferðarslysum hér á landi árið 2010. Þar af voru 213 sem slösuðust alvarlega eða létust en voru 187 árið áður. Ef tölur Slysaskrár Íslands eru skoðaðar þá leituðu 3181 einstaklingar læknis eftir umferðarslys árið 2010. Slysaskráin nær ekki yfir allt landið þar sem ekki eru öll sjúkrahús og heilsugæslustöðvar farnar að skrá í hann en rúmlega 65% þeirra sem skrá slys eru að skrá í grunninn.
Gagnlegt er að skoða slysakort Umferðarstofu til að átta sig á hvar umferðarslysin verða á þjóðvegum landsins. Á sama korti er hægt að skoða úttekt EuroRAP á helstu vegum landsins m.t.t. öryggis og ásamt öllum vegum Vegagerðarinnar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
