Hjólreiðar
Reiðhjól er góður og heilbrigður ferðamáti. Öruggast er að hjólreiðamenn noti stíga þar sem þeir eru til staðar.

Hjólið
Meirihluti þeirra sem fara um á hjólum nota þau aðallega þegar færð er góð en ekki í snjó og hálku. Þeir sem hjóla allan ársins hring fer hinsvegar fjölgandi. Huga þarf að ástandi hjólsins eins og annarra farartækja. Bremsur, keðjuhlíf, gírar og dekk eru þættir sem skipta máli.
Hjálmur
Alvarlegustu hjólreiðaslysin verða þar sem vélknúin ökutæki koma til sögunnar. 75% banaslysa verða vegna höfuðáverka. Því er mikilvægt að hjólreiðamenn noti ávallt hjálm, sama á hvaða aldri þeir eru. Reiðhjólahjálmur veitir vörn og dregur úr líkum á alvarlegum höfuðáverkum við slys. Samkvæmt upplýsingum sem eru á vef Rannsóknarnefndar umferðarslysa minnkar hjálmur líkur á höfuðáverkum um 69%. Ef skoðaðir eru alvarlegir höfuðáverkar, þá er talið að hjálmur geti komið í veg fyrir 79% þeirra. Til að hjálmur veiti fulla vörn þarf hann að vera af réttri stærð, vera heill og sitja rétt á höfði viðkomandi. Eyrað á að vera í miðju V forminu og einn til tveir fingur komast undir hökubandið.
Sýnileiki hjólreiðamanna
Mikilvægt er að hjólreiðamenn velji fatnað sem er áberandi í umferðinni eða noti vesti í skærum lit til að tryggja að þeir séu sýnilegir í umferðinni. Gul glitaugu eiga að vera á dekkjum hjólsins, hvítt glitauga að framan og rautt að aftan. Þegar farið er að skyggja þarf að nota ljós, hvítt að framan og rautt að aftan.
Umferðarstofa hefur gert myndband um öryggi hjólreiðamanna þar sem farið er yfir helstu þætti hjólreiða.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
