Endurskin
Endurskinsmerki eru mikilvægur öryggisþáttur fyrir þá sem eru óvarðir í umferðinni. Með endurskinsmerki sést viðkomandi fimm sinnum fyrr miðað við að hann væri án endurskins.

Gott er að velja sér fatnað og skó með endurskinsmerki á ef þess er kostur. Þegar endurskinsmerki eru sett á töskur og flíkur á að staðsetja þau neðarlega og sjá til þess að þau sjáist frá öllum hliðum. Endurskinsmerki má fá í m.a. í mörgum apótekum, stórmörkuðum, byggingavöruverslunum, bensínstöðvum og hjá ýmsum fyrirtækjum.
Var efnið hjálplegt?