Öryggi barna í bílum
Á hverju ári slasast yfir 20 börn, 6 ára og yngri, sem farþegar í bílum. Með góðum öryggisbúnaði hefði verið hægt að koma í veg fyrir mörg þessara slysa og/eða draga verulega úr áverkum í öðrum.
Könnun á öryggisbúnaði barna í bílum hefur verið gerð undanfarin 16 ár fyrir utan leikskóla landsins á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu. Mikið hefur áunnist í öryggismálum barna frá því að byrjað var að gera könnunina. Í upphafi voru 32% barna laus í bílum en árið 2011 er 2% barna laus. Ekkert foreldri ætti að ferðast með barnið sitt í bíl án þess að nota öryggisbúnað fyrir barn sitt. Öryggisbúnaður getur skilið á milli lífs og dauða ef umferðarslys ber að höndum.
Rautt: Börn laus í bifreiðinni, án öryggisbúnaðar
Gult: Börn notuðu eingöngu bílbelti, en það er ekki fullnægjandi búnaður fyrir börn á leikskólaaldri
Grænt: Börn í öryggisbúnaði, bílstól eða bílpúða með eða án baks
Jafnframt sýndi könnunin árið 2011 að 6% barna voru eingöngu í bílbelti sem er ekki réttur öryggisbúnaður fyrir börn á leikskólaaldri. Fram að 36 kg þyngd eiga börn að vera í sérstökum öryggisbúnaði umfram bílbelti, búnað sem miðaður er við þyngd barnsins.
Í skýrslu um öryggisbúnað barna í bílum má sjá niðurstöður könnunarinnar í heild sinni.