Börn

Ábyrgðin liggur fyrst og fremst hjá foreldrum og forráðamönnum að tryggja öryggi barna sinna í umferðinni en margt er hægt að gera til að auka öryggi þeirra þar.

 

 

Mikilvægt er að byrja strax á réttri hegðun og bregða ekki út af vananum í þeim efnum. Yngstu börnin eiga sérstaklega erfitt með að skilja af hverju má stundum og stundum ekki. Þegar þau eldast og eru farin að fara ein um þá gildir að þau beiti réttum aðferðum í umferðinni alltaf en ekki bara stundum eing og mamma og pabbi hafa ef til vill gert.