Hleð spilara!

Bíllinn

Bílaframleiðendur eru alltaf að kappkosta það að gera bíla sína öruggari og betri. Undanfarin ár hefur orðið mikil þróun í þeim efnum.


 
Fleiri öryggisbúðar, betri krumpusvæði, öflugri bremsur, skriðvarnir, viðvaranir og margt fleira eru þættir sem hafa áhrif á það hversu öruggur bíllinn er. Öryggisprófanir eru gerðar á bílum og þeim gefnar stjörnur sem geta flestar orðið fimm. Mikilvægt er að kynna sér hversu öruggur bíllinn er sérstaklega þegar á það að fjárfesta í nýjum bíl. Þar sem öruggari bíll minnkar líkur á slysum á fólki ef lent er í umferðartjóni. Upplýsingar um stjörnugjöf bíla má meðal annars finna á Euro NCAP.