Hleð spilara!

Aldraðir

Með aldrinum verða margar líkamlegar breytingar hjá hverjum og einum. Heyrn, sjón, viðbragð og stöðugleiki breytist sem getur haft áhrif á aksturshæfi hvers og eins.


Þegar orsakir tjóna hjá eru skoðaðar sést að tjónaorsakir breytast með aldrinum. Tjón þar sem bakkað er á verða tíðari ásamt tjónum þar sem vinstri beygjur eru teknar. Eldri borgarar þurfa að vera meðvitaðir um þá þætti í umferðinni sem þeim finnst erfiðara að takast á við en áður og taka tillit til þeirra. Þeir þættir geta verið:
Birta
Með auknum aldri þarf meiri lýsingu. Oft er miðað við að um tvítugt dugar 20 W pera til að sjá nægjanlega skýrt. Um sjötugt þarf 70 W peru. Myrkur, lélegt skyggni eins og þoka og skafrenningur og ljósaskipti eru aðstæður sem eldri borgarar sjá ver í heldur en þeir sem yngri eru og gott að miða aksturinn við það. Jafnframt getur of mikil birta haft áhrif en við þær aðstæður gagnast sólgleraugu best.

Hraði
Viðbragð verður hægara með aldrinum. Hröð umferð er því oft erfiðari þeim sem eldri eru. Mikilvægt er að draga úr hraða eigin bíls og fara um svæði þar sem umferð er minni og hægari en er t.d. á stofnbrautum.

Merkingar
Sjónin er einn sá þáttur sem breytist gjarnan með með aldrinum. Þær breytingar geta haft áhrif á hæfni til aksturs. Í könnun sem gerð var meðal eldri borgara kom fram að stærri umferðarskilti var eitt af þeim atriðum sem nefnt var sem kæmi til með að efla þá sem ökumenn. Umferðarmerkingar breytast með tíð og tíma og oft getur verið erfitt að átta sig á nýjum merkjum. Mörgum reynist því best að halda sig við leiðir sem þeir þekkja og forðast nýjar leiðir.

Umferðarmannvirki
Ný umferðarmannvirki, eins og slaufur, geta verið flókin og erfitt að átta sig á þeim. Gott er að nýta sér frekar aðrar leiðir, sem eru einfaldari og viðkomandi þekkir betur.

Gangbrautir
Mjög mikilvægt er að vera meðvitaður um að fara yfir götur á öruggan hátt. Nýta sér gangbrautir og gefa sér góðan tíma til að fara yfir götuna þ.e. að vera viss um að langt sé næsta bíl.

Endurskinsmerki
Endurskinsmerki eru mikilvæg öryggisatriði. Með notkun þeirra sést viðkomandi fimm sinnum fyrr sem gefur ökumanni mun meiri tíma til að bregðast við.

Mannbroddar
Góður skóbúnaður eykur stöðuleika þegar verið á gönguferðum. Á veturna er all algengt að fólk detti þegar hálka og snjór er. Eldri borgurum er hættast við að brotna þegar þeir detta og geta einstaklingar aukið öryggi sitt til muna með því að nota mannbrodda. Mannbrodda er hægt að fá víða en skósmiðir eru oftast nær með breiðasta úrvalið.

 Lyf
Eldri borgarar taka oft ýmis lyf. Mikilvægt er að þeir kynni sér vel  hvort lyfin hafi áhrif á aksturshæfni og  .